Kaupþing hugsanlega í hendur bandarískra vogunarsjóða Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 14. júlí 2009 18:41
Flest bendir til þess að bandarískir vogunar- og tryggingarsjóðir verði stærstu eigendur Kaupþings í vikulok. Viðræðurnar munu vera á viðkvæmu stigi. Stefnt er að því að efnahagsreikningur ríkisbankanna liggi fyrir á föstudag. Þá á einnig að vera komið í ljós hvernig bankarnir verði fjármagnaðir og með hvaða hætti kröfuhafar koma að þeim. Stíf fundahöld með fulltrúum kröfuhafa, fjármálaráðuneytisins, skilanefndum og ráðgjafafyrirtækinu Hawk Point hafa verið í dag og mun vera áframhald á þeim á fimmtudag. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru meiri líkur en minni að Kaupþing verði í eigu erlendra kröfuhafa í lok vikunnar. Kröfuhafahópurinn samanstendur af skuldabréfaeigendum en hópurinn hefur tekið miklum breytingum frá síðasta hausti. Í upphafi voru þetta að mestu Evrópskir bankar og voru þýsku bankarnir áberandi í þeim hópi. Skuldabréfin hafa þó á undanförnum mánuðum gengið kaupum og sölu og eru bandarískir vogunar- og tryggingarsjóðir nú fyrirferðamestir í hópi kröfuhafa. Heimildir fréttastofu herma að sá möguleiki sé einnig uppi á borðum að kröfuhafarnir fái hlutdeild í hagnaði bankans og vilyrði til að kaupa hann síðar. Viðræðurnar munu vera á viðkvæmu stigi og vildi Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, lítið tjá sig um málið. Gylfi segir það hafa marga kosti í för með sér verði Kaupþing í eigu erlendra aðila. Ríkið þyrfti þá að leggja til minna fé í endurreisn bankakerfisins auk þess sem líklegt er að slíkur banki væri í betri tengslum við hið alþjóðlega bankaumhverfi.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Festa og Gildi vilja sameinast Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira