Mun líklega verða stærsti eigandi Alfesca á ný 16. september 2009 18:27
Ólafur Ólafsson mun að öllum líkindum tryggja sér vel yfir helmingshlut í Alfesca og verða stærsti eigandi félagsins á nýjan leik. Slíkt mun Ólafur gera í gegnum nýtt félag sem hann stofnaði í byrjun árs. Ólafur Ólafsson hefur verið ráðandi eigandi í Alfesca í mörg ár í gegnum fjárfestingafélag sitt, Kjalar Invest. Eftir bankahrunið flutti Ólafur Kjalar Invest úr Eglu, félagi sínu sem nú er í nauðasamningum, og inn í nýtt íslenskt félag í samráði við lánadrottna Kjalars. Í byrjun árs 2009 stofnaði hann síðan félagið Alta Food Holding, og rann Kjalar Invest og þar með 40% eignarhlutur í Alfesca, þangað inn. Kjalar Invest myndaði nýlega samstarf með franska félaginu Lur Berri Holding og Kaupþingi Singer&Friedlander og gerðu þessir aðilar yfirtökutilboð í Alfesca, sem hluthafar samþykktu í ágúst og leiðir til þess að Alfesca verður tekið úr kauphöllinni. Alta Food Holding sem nú á Kjalar Invest hefur einnig gert samkomulag við Kaupþing Singer&Friedlander um að bankinn geti einhliða og að eigin geðþótta ákveðið að veita Alta Food Holding kauprétt að 24% hlut bankans í Alfesca - fyrir 6 milljarða. Ef svo fer verður kauprétturinn virkur 30. nóvember næstkomandi. Líklegt má telja að Kaupþing Singer&Friedlander ákveði að selja hlut sinn í Alfesca, enda er bankinn í greiðslustöðvun. Ekki liggur fyrir hvernig Ólafur hyggst fjármagna kaupin ef til þeirra kemur. Ef hins vegar allt þetta gengur upp er ljóst að Ólafur Ólafsson mun eiga samtals 64% hlut í Alfesca innan skamms, í gegnum félagið Alta Food Holding sem hann stofnaði í byrjun árs. Ólafur Ólafsson lék stórt hlutverk þegar hinn margumræddi sjeik Mohamed Al Thani keypti 5% hlut í Kaupþingi rétt fyrir bankahrunið. Hinn sami Al Thani ætlaði einnig að kaupa hlut í Alfesca sumarið 2008, en hætti síðan við.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira