Greining: Merkilega líkar hagspár miðað við óvissu 6. nóvember 2009 10:57
Greining Íslandsbanka fjallar um það í Morgunkorni sínu hve hagspár þær sem birtar hafa verið að undanförnu séu merkilega líkar hvor annarri miðað við þá óvissu sem framundan er í efnahagsmálum þjóðarinnar. „Má nefna óvissu varðandi hvernig tekst að greiða úr fjárhagslegri stöðu fyrirtækja og heimila, hvernig tekst til við afnám gjaldeyrishafta, hvernig framvindan verður í uppbyggingu bankakerfisins, hvað verður með aðild að ESB, hvernig fer með Icesave, hver verður staða alþjóðlegra efnahagsmála, hvað verður með stóriðjuframkvæmdir, hvað með kjarasamninga, hvernig verður úthlutun aflaheimilda og verðþróun sjávarafurða," segir í Morgunkorninu. Greiningin segir að allar þessar spár byggi í stórum dráttum á svipuðum forsendum og þ.m.t. því að meginmarkmiðin í efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS gangi eftir og það takist m.a. í raun að halda krónunni stöðugri og jafnvel styrkja hana þegar fram í sækir. Að endurreisn fjármálakerfisins gangi að óskum og það takist að haga ríkisfjármálum þannig að skuldabagginn verði ekki óviðráðanlegur og afgangur skapist fljótlega til að greiða niður skuldir. „Ekki er loku fyrir það skotið að efnahagsþróunin verði með talsvert öðrum hætti," segir í Morgunkorninu. Það kemur greiningunni ekki á óvart að efnahagsspá Seðlabankans sem birt var í gær sé í takti við þær spár sem AGS og fjármálaráðuneytið hafa birt nýlega. Í raun má bæta við fleiri hagspám sem hafa verið á sömu nótum, s.s. spá ASÍ sem birt var fyrir skömmu. Seðlabankinn spáir því að samdráttur landsframleiðslu verði 8,5% í ár en í spá fjármálaráðuneytisins sem birtist í upphafi október er reiknað með 8,4% samdrætti og í nýjustu spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er reiknað með 8,5% samdrætti. Líkt og Seðlabankinn reikna bæði fjármálaráðuneytið og AGS með því að samdrátturinn haldi áfram fram á næsta ári en þá verður hann 1,9-2,4% samkvæmt þessum spám. Vaxandi slaki með samdrætti landsframleiðslu mun kalla fram aukið atvinnuleysi sem Seðlabankinn reiknar með að verði 9,8% á næsta ári en bæði AGS og fjármálaráðuneytið reikna með því að það verði 10,6%. Samkvæmt öllum þessum spám mun gengi krónunnar verða stöðugt eða styrkjast á næstunni um leiða og hagkerfið ná betra jafnvægi með hjöðnun verðbólgunnar og minnkandi viðskiptahalla.Seðlabankinn líkt og fjármálaráðuneytið og AGS reikna með því að hagkerfið taki við sér árið 2011. Spáir Seðlabankinn því að hagvöxtur það ár verði 2,2% sem er nálægt spá fjármálaráðuneytisins sem hljóðar upp á 2,8% vöxt. Þetta er hins vegar öllu kröftugri vöxtur en AGS er að reikna með en sjóðurinn spáir 0,9% hagvexti hér á landi árið 2011.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira