Fær engar upplýsingar um viðbótarlífeyrissparnað sinn Gunnar Örn Jónson skrifar 8. júlí 2009 15:14
Halldóra Jóna Lárusdóttir, fyrrum viðskiptavinur Spron, fékk sent bréf frá lífeyrissparnaði Spron sem segir að viðbótariðgjöld í lífeyrissparnað hennar hjá bankanum hafi ekki verið greidd. Þegar hún athugaði málið og vildi forvitnast um stöðu sjóðsins fékk hún engin svör. Eins og kunnugt er, heyrir Spron nú undir Fjármálaeftirlitið en flestir fyrrum viðskiptavinir Spron hafa verið fluttir yfir til Kaupþings. Bréfið sem Halldóra fékk í hendurnar var sent af hálfu innheimtuþjónustu Spron á Túngötu 3, Siglufirði. „Þegar ég hringdi í Spron á Siglufirði gátu þeir ekki gefið mér neinar upplýsingar um mína stöðu né stöðu sjóðsins sem mín iðgjöld renna til. Þeir vísuðu mér á Kaupþing. Hjá Kaupþingi fékk ég hins vegar þau svör að það þýddi ekkert að tala við þá þar sem þeir hafa ekki neinar upplýsingar um séreignarlífeyrismál fyrrum viðskiptavina Spron. Starfsmenn Kaupþings bentu mér hins vegar á að ræða við skilanefnd Spron þar sem símsvari tók á móti mér,“ sagði Halldóra og skilur ekki hvernig í ósköpunum hún eigi að afla upplýsinga um stöðu lífeyrismála sinna. „Þeir eru tilbúnir að taka á móti peningum en geta ekkert tjáð sig um hvernig staða sjóðsins er, hve mikla peninga ég á inní sjóðnum og hvort ég hafi tapað einhverju. Ég hef sem sagt ekki upplýsingar um nokkurn hlut sem þarna fer fram. Þetta er alveg með ólíkindum. Við erum að tala um mína peningana sem Spron hafði til umráða en enginn vill kannast við þá í dag,“ sagði Halldóra í samtali við Vísi. Henni finnst einnig með eindæmum að Spron vitni tvisvar sinnum í bréfi sínu til þess að hún geti nálgast eyðublöð vegna lífeyrisiðgjalda sinna í öllum útibúum Spron. „Ég veit ekki til þess að Spron sé með nein útibú opin í dag,“ sagði Halldóra. Halldóra segist ekki hafa greitt í sjóðinn síðan í mars vegna þess að hún hafi ekki fengið neinar upplýsingar um stöðu sjóðsins. „Ég fer ekki að greiða í einhvern sjóð sem enginn getur upplýst mig um hvernig standi, það kemur ekki til greina,“ sagði Hallsóra að lokum.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira