Milljarða lán Milestone til Wernersbræðra einskis virði 18. september 2009 18:41
Sex milljarða króna lán Milestone til Karls og Steingríms Wernerssona, fyrrverandi eigenda félagsins, er einskis virði í bókum þess. Lánið var veitt til félags í eigu bræðranna og var meðal annars notað til að kaupa systur þeirra út úr Milestone. Milestone ehf var í dag úrskurðað gjaldþrota en stjórn félagsins hafði farið fram á það eftir að kröfuhafar höfnuðu nauðasamningi fyrr í vikunni. Milestone er í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Kröfur í búið nema tæplega 90 milljörðum króna og var Glitnir langstærsti kröfuhafinn með 41,6 milljarða króna kröfu. Þá gerðu sex lífeyrissjóðir kröfur í búið, upp á alls 1,7 milljarð íslenskra króna. Í nauðasamningunum var áætlað virði eigna Milestone um 5,5 milljarðar. Ekki voru þó allar kröfur sem Milestone átti í samningstilboðinu. Þær kröfur sem litlar sem engar líkur voru á að fengist eitthvað upp í var sleppt. Þeirra á meðal 6,1 milljarða króna krafa á Milestone Limited. Það félag er einnig í eigu Karls og Steingríms. Árið 2007 fengu þeir bræður meðal annars tveggja og hálfs milljarða króna lán hjá Milestone í gegnum Milestone Limited til að kaupa systur sína út úr félaginu. Krafan hefur þó ekki verið afskrifuð en í bókum Milestone er hún einskis virði. Samkvæmt heimildum fréttastofu ríkti mikil reiði á meðal kröfuhafa vegna milljarða lánveitinga til Wernersbræðra sem ekki fást til baka.
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira