Eignir lífeyrissjóðanna halda áfram að rýrna 16. apríl 2009 11:57
Hrein eign lífeyrissjóðanna skrapp saman um 22,8 milljarða kr. í febrúar og hefur hún þá lækkað um 231,4 milljarða kr. frá því í ágúst í fyrra, fyrir hrun bankanna. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris nam í lok febrúar 1.592 milljörðum kr. samanborið við 1.823 milljarða kr. í lok ágúst í fyrra. Hrein eign sjóðanna til greiðslu lífeyris var í lok febrúar svipuð og hún var í maí 2007, þrátt fyrir að hreint innflæði vegna iðgjalda umfram lífeyrisgreiðslur hafi verið verulegt á tímabilinu. Að raungildi var hrein eign sjóðanna til greiðslu lífeyris svipuð í lok febrúar og hún var í nóvember 2005. Kemur þetta fram í tölum Seðlabankans. Lækkunina á hreinni eign lífeyrissjóðanna í febrúar má rekja til lækkunar á erlendri eign lífeyrissjóðanna um 33 milljarða kr sem er tilkomin vegna styrkingar krónunnar í febrúar ásamt verðbreytinga á verðbréfamörkuðum ytra. Erlendar eignir lífeyrissjóðanna voru 391 milljarðar kr. í lok febrúar eða tæplega fjórðungur af hreinni eign. Erlendar eignir sjóðanna voru 473 milljarða kr. í lok síðastliðins árs og hafa því lækkað um 82 milljarða kr. á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Lækkunin skýrist að mestu af gengishækkun krónunnar á sama tímabili. Þrátt fyrir að síðasta ár hafi verið íslenskum lífeyrissjóðum þungt í skauti eru þeir stórir í samanburði við stærð hagkerfisins og á þann mælikvarða öflugir í alþjóðlegum samanburði. Hrein eign þeirra í lok febrúar nam 105% af áætlaðri vergri landsframleiðslu (VLF) í ár, sem þykir hátt í alþjóðlegum samanburði.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira