Veruleg inngrip Seðlabankans gjaldeyrismarkaði í júní 6. júlí 2009 12:09
Nettósala Seðlabankans á gjaldeyri nam 2,5 milljörðum kr. í síðasta mánuði, sem jafngildir ríflega 40% af heildarveltu á markaðinum. Seðlabankinn hefur ekki selt meiri gjaldeyri í einum mánuði það sem af er ári. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í nýlega birtum tölum Seðlabankans um millibankamarkað með gjaldeyri á fyrri helmingi ársins kemur fram að heildarvelta á þeim markaði nam tæplega 6,2 milljörðum kr. í júní. Er það mesta velta í einum mánuði það sem af er ári, sem kemur ekki á óvart í ljósi verulegra vaxtagreiðslna til útlendinga í mánuðinum Seðlabankinn hefur verið býsna umsvifamikill á millibankamarkaði með gjaldeyri undanfarna mánuði. Gjaldeyrissala hans hefur þó ekki megnað að vega gegn gjaldeyriskaupum annarra á markaði, þrátt fyrir umtalsverðan afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum á fyrri hluta árs.. Þegar Seðlabankinn beitir sér á gjaldeyrismarkaði selur hann jafnan 250.000 evra til hvers viðskiptavakanna þriggja, Íslandsbanka, Landsbankans og Kaupþings. Út frá þeirri staðreynd, nettósölu bankans á gjaldeyri og meðalgengi evru gagnvart krónu í hverjum mánuði má gróflega áætla fjölda inngripa bankans í mánuði hverjum. Með þeirri aðferð telst greiningunni til að inngrip Seðlabankans í júnímánuði hafi verið 19 talsins. Inngripin í einum mánuði hafa ekki verið fleiri það sem af er ári, en þrátt fyrir það veiktist krónan um ríflega 4% gagnvart evru í mánuðinum. Væntanlega á útflæði vegna vaxtagreiðslna til útlendinga talsverðan hlut að máli í þeirri veikingu. Hins vegar var afgangur af vöruskiptum verulegur í júní, auk þess sem við teljum allar líkur á að þjónustuviðskipti hafi einnig skapað nettó gjaldeyrisinnflæði í mánuðinum vegna ferðamannastraums hingað til lands og mikillar fækkunar ferða Íslendinga erlendis frá fyrri árum. Að öllu samanlögðu hefði þessi afgangur, auk inngripa Seðlabanka, átt að vega upp útflæði vegna vaxtagreiðslna og jafnvel gott betur. Það virðist því sem talsverð vanhöld séu enn á því að allar gjaldeyristekjur skili sér inn á gjaldeyrismarkað.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira