Þolinmæði kröfuhafa Exista þrotin 26. september 2009 06:00 Frá stjórnarfundi Exista Nýja Kaupþing og aðrir innlendir kröfuhafar vilja setja stjórnendur Exista af og taka félagið yfir. Fréttablaðið/Valli „
Þegar Exista seldi Bakkavör tók steininn úr. Þá þvarr allt traust og við hjá bankanum misstum endanlega þolinmæðina,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings. Bankinn kærði í gær forsvarsmenn Exista auk nokkurra starfsmanna Deloitte og Logos til sérstaks saksóknara vegna hlutafjárhækkunar Exista í desember í fyrra og sölu félagsins á rúmlega fjörutíu prósenta hlut í Bakkavör fyrir um hálfum mánuði. Lögmannsstofurnar sáu um tilkynningu til hlutaskrár vegna hlutafjárhækkunarinnar. Nýja Kaupþing telur hegningarlög hafa verið brotin en viðurlög við þeim hljóðar upp á allt að sex ára fangelsisdóm. Bankinn mun jafnframt leita viðeigandi einkaréttarlegra úrræða samhliða kærunni, segir í tilkynningu hans. Bankinn átti veð í öllum hlutum félags Lýðs, starfandi stjórnarformanns Exista, og Ágústs Guðmundssona, forstjóra Bakkavarar, í Exista. Við hlutafjárhækkunina hafi veðin lækkað í tíu prósent úr fjörutíu. Þá hafi salan á Bakkavör verið brot á lánasamningum Exista. Finnur segir bæði ólöglega staðið að hlutafjárhækkuninni auk þess sem leita hafi átt samþykkis lánardrottna vegna sölunnar á Bakkavör. Þess var ekki leitað. „Viðræður hafa staðið yfir mánuðum saman um fjárhagslega endurskipulagningu Exista. Við hefðum gjarnan viljað vinna þetta í sátt við aðra kröfuhafa. En viðræður hafa dregist von úr viti. Okkur sýnist samningsvilji forsvarsmanna félagsins vart til staðar,“ segir Finnur. Innlendir kröfuhafar hafa um nokkurra mánaða skeið krafist uppstokkunar á Exista, að þeir Erlendur Hjaltason og Sigurður Valtýsson, forstjórar félagsins, fari frá og félagið verði tekið yfir. Í kjölfarið yrði Exista leyst upp. Einu eignir félagsins eru Skipti, móðurfélag Símans, tryggingafélögin VÍS og Lífís, Öryggismiðstöðin og eignaleigufyrirtækið Lýsing. Félagið var stærsti hluthafi Kaupþings og var umsvifamikið á erlendum mörkuðum þar til í fyrrahaust þegar ríkið tók Kaupþing yfir og eignahluturinn varð að engu. Erlendir kröfuhafar hafa á móti viljað fara sér hægar. Finnur segir málið hafa strandað á tregðu helstu eigenda Exista. Spurning sé um vikur hvenær örlög félagsins ráðist. „Við höfum ekki séð neina ákæru. Ég vil því ekki tjá mig um hana. En það eru vonbrigði að bankinn vilji fara þessa leið,“ segir Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar. „Það er best fyrir okkur að sjá hvað þeir eru með og taka málefnalega afstöðu til þess þegar þar að kemur.“ Ekki náðist í Lýð Guðmundsson, stjórnarformann Exista, við vinnslu fréttarinnar. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Fleiri fréttir Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Sjá meira