AGS: Skilyrði að skapast fyrir varkárum vaxtalækkunum 29. október 2009 09:31
Það er mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) að skilyrði séu nú að skapast fyrir varkárum vaxtalækkunum á Íslandi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Murilo Portugal aðstoðarforstjóra AGS sem gefin var út í trengslum við endurskoðun sjóðsins á áætlun hans og íslenskra stjórnvalda sem samþykkt var í gærdag. Þá segir Portugal í yfirlýsingunni að botni kreppunnar ætti að verða náð á miðju næsta ári og að viðsnúningur í efnahagslífinu myndi hefjast um það leyti. „Ísland hefur komið úr kreppunni með háar erlendar og opinberar skuldir, hærri en menn gerðu sér grein fyrir í upphafi áætlunarinnar," segir Portugal en hann bætir því við að hraðari aðlögun, lengri tími í að aflétta gjaldeyrishöftunum og meiri einbeiting í að endurskipuleggja skuldir einkageirans ættu að duga til þess að skuldirnar yrðu viðráðanlegar og lækki hratt. Portugal segir að endurskipulagning fjármálakerfisins hafi reynst flókin í framkvæmd en áfangar hafi náðst með endurreisn Nýja Kaupþings og Íslandsbanka. Nú sé mikilvægt að ljúka einnig við Landsbanka málið og endurfjármagna þann banka. „Koma verður fram við kröfuhafa af heiðarleika og sanngirni og samkvæmt lögum en það er einnig mikilvægt að stjórnvöld taki ekki á sig frekara tap frá einkageiranum," segir Portugal.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira