Vöruskipti hagstæð um 8,3 milljarða 30. apríl 2009 09:26 Það er af sem áður var þegar bílafloti var á hafnarbakkanum í Reykjavík.
Íslendingar fluttu út vörur fyrir fyrir 34,7 milljarða í marsmánuði og inn fyrir 26,5 milljarða króna. Vöruskiptin í mars voru því hagstæð um 8,3 milljarða króna að því er fram kemur á heimasíðu Hagstofunnar. Fyrir ári síðan vou vöruskiptin því óhagstæð um 3,1 milljarð króna á sama gengi. Fyrstu þrjá mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 100,7 milljarða króna en inn fyrir 86,1 milljarð. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 14,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,5 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 52,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. Verðmæti útflutnings á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur dregist saman um 14,7 prósent miðað við sama tíma í fyrra og nam það 17,4 milljörðum. „Sjávarafurðir voru 42% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,2% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 49% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,3% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls," segir í tilkynningu Hagstofunnar. Verðmæti vöruinnflutnings hefur einnig dregist saman og var 69,4 milljörðum, eða 44,6 prósentum minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. „Samdráttur varð í verðmæti nær allra liða innflutnings, mest í fjárfestingavöru og flutningatækjum," segir að lokum.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira