Ferðaþjónusta fær 170 milljónir í markaðsátak 13. október 2009 13:18
Starfshópur sem í sátu fulltrúar Ferðamálastofu, Útflutningsráðs og Höfuðborgarstofu hefur farið yfir umsóknir um samstarfsverkefni til markaðssetningar Íslands á tímabilinu október 2009 til mars 2010. Alls bárust 20 umsóknir og hefur verið samþykkt að ganga til samninga um 6 verkefni að heildarfjárhæð um 170 milljónir króna. Öll verkefnin snúast um kynningu í formi auglýsinga í prentmiðlum og/eða á vefnum á því tímabili sem um ræðir og uppfylltu einnig önnur þau skilyrði sem fram komu í auglýsingunni um verkefnið. Í tilkyningu segir að Ferðamálastofa í samstarfi við iðnaðarráðuneytið, Útflutningsráð og Reykjavíkurborg, auglýsti þann 11. september síðastliðinn eftir tillögum frá íslenskum ferðaþjónustuaðilum að umræddum samstarfsverkefnum. Verkefni dreifast á meginmarkaðssvæði íslenskrar ferðaþjónustu í Bretlandi, á meginlandi Evrópu, í N-Ameríku og á Norðurlöndum. Þau verkefni sem samþykkt var að ganga til samstarfs um voru þessi: Icelandair: Winter Campaign Boston - New York - Seattle. Iceland Express: Markaðsherferð á vefnum í Bretlandi frá október 2009 til mars 2010. Go To Iceland LLC: Go To Iceland. Icelandair: Newspaper & Online Campaign - Frankfurt, Paris and Amsterdam. Iceland Express: Markaðsherferð á vefnum í Skandinavíu frá október 2009 til mars 2010 og Iceland Travel ehf.: Iceland Total. Heildarráðstöfunarfé/-framlag til samstarfsverkefnanna er 50 milljónir króna. Í auglýsingu var tekið fram að mótframlag umsóknaraðila skyldi vera að lágmarki tvöfalt hærra en framlag Ferðamálastofu (2 kr. á móti einni). Lágmarksframlag til eins verkefnis miðaðist við 5 milljónir króna og hámarksframlag til eins verkefnis 10 milljónir króna. Að teknu tilliti til mótframlags í þeim verkefnum sem samþykkt voru er ljóst að framlag til átaksins fullnýtist. Að viðbættu mótframlagi umsóknaraðila er heildarupphæð átaksins 170 milljónir króna, sem fyrr segir. Jón Gunnar Borgþórsson, forstöðumaður markaðssviðs Ferðamálastofu, segist ánægður að sjá þau góðu viðbrögð sem ferðaþjónustuaðilar sýndu verkefninu. Það sé mikilvægt að halda áfram að markaðssetja ferðamannalandið Ísland af krafti. Þeir fjármunir sem nú fari í þetta tiltekna verkefni komi á góðum tíma nú á haustmánuðum og því ríkir bjartsýni á að árangurinn verði góður.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Sjá meira