Tveir í peningastefnunefnd vildu óbreytta stýrivexti 18. júní 2009 16:48 Svein Harald Oygard, Seðlabankastjóri, vildi lækka stýrivexti um 1% sem varð raunin.
Tveir af fimm nefndarmönnum peningastefnunefndar Seðlabankans vildu halda stýrivöxtum óbreyttum í 13% við stýrivaxtaákvörðun bankans í byrjun júní mánaðar. Þrír nefndarmenn töldu ráðlegt að lækka stýrivexti um eitt prósent eins og raunin varð. Ákvörðun Seðlabankans naut ekki mikilla vinsælda meðal almennings og atvinnulífsins en rökin fyrir ákvörðun nefndarinnar eru eftirfarandi; Peningastefnunefnd skoðaði forsendur þess að losa gjaldeyrishöftin og taldi að yrði það gert of snemma gæti það stefnt stöðugleika krónunnar í tvísýnu. Samþykkt aðhaldsaðgerða í opinberum fjármálum til langs tíma og endurskipulagning bankakerfisins myndu styðja við uppbyggingu efnahagslífsins og draga úr hættu á verulegri gengislækkun í kjölfar afnáms gjaldeyrishaftanna. Varfærin slökun peningalegs aðhalds í tengslum við aðhaldsaðgerðir í opinberum fjármálum ætti að samrýmast afnámi gjaldeyrishafta án þess að stöðugleika krónunnar væri stefnt í tvísýnu. Þegar aðhaldsaðgerðir í opinberum fjármálum til langs tíma hafa verið samþykktar, tvíhliða og marghliða lánasamningum sem styrkja gjaldeyrisforðann lokið og endurskipulagning fjármálageirans langt komin væri hægt að taka fyrstu skrefin að afnámi hafta seinna á þessu ári með því að gefa nýfjárfestingu frjálsa. Í ljósi ofangreindrar umræðu ræddu nefndarmenn mögulega vaxtaákvörðun á bilinu frá óbreyttum stýrivöxtum til lækkunar um 2,0 prósentur og lækkunar innlánsvaxta um allt að 1,25 prósentur. Með hliðsjón af umræðunni lagði seðlabankastjóri til að stýrivextir yrðu lækkaðir um 1,0 prósentu í 12,0%. Seðlabankastjóri bauð öðrum meðlimum peningastefnunefndarinnar að greiða atkvæði um tillöguna. Þrír nefndarmenn greiddu atkvæði með tillögu seðlabankastjórans. Hinir tveir nefndarmennirnir greiddu atkvæði með því að halda stýrivöxtum óbreyttum. Allir nefndarmenn voru sammála um að innlánsvextir skyldu verða óbreyttir, 9,5%.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira