Búist við enn frekari lækkun fasteignaverðs 18. júní 2009 12:02 Frá Kópavogi. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Búast má við langvinnri niðursveiflu á íbúðamarkaði í kjölfar kreppunnar. Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að íbúðaverð muni lækka um 20% að nafnvirði á þessu ári og um 10% til viðbótar á næsta ári. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,7% í maí frá fyrri mánuði samkvæmt vísitölu Fasteignaskrár Íslands. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú lækkað nær samfellt undanfarið ár um samtals 10,5% að nafnvirði og 20% að raunvirði. Endurspeglar lækkunin þann mikla samdrátt sem á sér nú stað á íbúðamarkaði og í hagkerfinu öllu. Frá áramótum talið hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 9% að nafnvirði. Íbúðir í fjölbýli hafa lækkað um 9,4% og íbúðir í sérbýli um 8%. Mun meiri velta er á íbúðamarkaði með íbúðir í fjölbýli sem skýrir mismunandi verðmyndun. Í árferði líkt og því sem nú ríkir eru það aðallega litlar fjölbýlisíbúðir sem ganga kaupum og sölum á meðan stærri og dýrari eignir eru illseljanlegar enda erfitt að fjármagna slík kaup um þessar mundir. Spá greiningardeildar Íslandsbanka er svipuð og spá Seðlabankans fyrir sama tímabil. Gangi þessar spár eftir mun íbúðaverð í árslok 2010 hafa lækkað um helming að raunvirði frá því að það náði toppi í lok árs 2007. Fjárfesting í íbúðarhúsnæði dregst samanAuk þess sem velta hefur dregist saman á íbúðamarkaði og verð hefur lækkað er kominn fram mikill samdráttur í fjárfestingu í íbúðarhúsnæði. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs dróst fjárfesting í íbúðarhúsnæði saman um helming samanborið við sama tímabil fyrra árs.Búast má við að íbúðarfjárfesting muni halda áfram að dragast saman allt fram á næsta ár e spá Seðlabankans gerir ráð fyrir að fjárfesting muni dragast saman um tæplega 50% á þessu ári og 25% á næsta ári.Fyrir kreppuna var fjárfestingarstigið í hagkerfinu hátt enda verð íbúðarhúsnæðis hátt miðað við byggingarkostnað. Nú hefur þetta dæmi hins vegar breyst og kostnaður hækkað á sama tíma og verðið hefur lækkað og væntingar skapast um enn frekari verðlækkun. Lausafjárerfiðleikar og kaupmáttarrýrnun ásamt almennri eiginfjárrýrnun hjá heimilunum setur einnig strik í reikninginn.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira