Raungengi krónunnar hækkaði milli mánaða 6. október 2009 11:54
Raungengi íslensku krónunnar hækkaði um 1,2% í september frá fyrri mánuði á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Hækkunin er komin til bæði vegna þess að nafngengi krónunnar hækkaði um 0,5% og vegna þess að verðbólgan hér á landi var umfram það sem hún var í okkar helstu nágrannalöndum. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að frá því í upphafi síðastliðins árs hefur raungengi krónunnar hins vegar lækkað umtalsvert samhliða gengislækkun krónunnar og er það nú afar lágt í sögulegu samhengi. Þannig er raungengið nú um þriðjungi undir langtímameðaltali sínu og 44% lægra en það var í nóvember 2005 þegar það náði hámarki. Þetta merkir m.a. að verðlag á Íslandi er mun lægra nú í samanburði við verðlag í öðrum ríkjum en verið hefur í áraraðir. Frá þriðja ársfjórðungi hefur raungengi krónunnar lækkað um 2,4% frá öðrum ársfjórðungi en um 21,7% frá sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Seðlabankinn birti í gær. Íslenskir launamenn eru nú mun ódýrari starfskraftur í samanburði við nágrannalönd okkar en raunin var undanfarin ár. Lækkun raungengis miðað við hlutfallslegan launakostnað nemur 30% ef þriðji fjórðungur þessa árs er borinn saman við sama tímabil í fyrra og sé farið tvö ár aftur í tímann nemur lækkunin tæpum 47%. Lækkun raungengis felur því í sér að launakostnaður hér á landi hafi hækkað minna en í viðskiptalöndunum að teknu tilliti til gengisbreytinga og þannig að kraftar íslenskra launþega hafi að jafnaði lækkað í verði gagnvart starfsbræðrum þeirra í viðskiptalöndum okkar sem þessu nemur. Kostir lágs raungengis eru að það eykur samkeppnishæfni innlendra aðila hvað varðar framleiðslukostnað vöru og þjónustu og flýtir fyrir aðlögun hagkerfisins í átt að ytra jafnvægi. Þannig hjálpar það útflutningsatvinnuvegum, auk þeirri innlendu starfsemi sem á í samkeppni við innflutning. Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki ættu að njóta góðs af lágu raungengi þar sem kaupmáttur erlendra ferðamanna sem leggja leið sína hingað til lands er mun meiri en áður sem eflaust ætti að leiða til þess að þeir komi til með gera betur við sig í mat, drykk og afþreyingu en undanfarin ár. Á hinn bóginn gerir lágt raungengi krónunnar það að verkum að kaupmáttur Íslendinga á erlendri grundu hefur snarminnkað. Þetta hefur m.a. haft þau áhrif að landinn hefur snardregið úr utanferðum en á fyrstu átta mánuðum þessa árs hafði brottförum Íslendinga fækkað um 45% frá sama tímabili í fyrra. Jafnframt er lágt raun- og nafngengi mikill vágestur heimilanna þar sem það eykur lánsfjárkostnað þeirra, hvort sem um er að ræða gengis- eða verðtryggð lán, og skerðir kaupmátt ráðstöfunartekna.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira