Norðurál: Yfirdrifin orka til fyrir Helguvík 13. október 2009 13:32
Fyrirhugaðar orkuframkvæmdir á suðvesturlandi geta gefið allt að 1.500 MW af orku sem er nærri þrefalt meira en þarf fyrir álver í Helguvík. Þetta kemur fram á vefsíðu Norðuráls sem stendur að álverinu í Helguvík. Þar segir að nokkur umræða hefur spunnist síðustu daga um orkuöflun til álvers Norðuráls í Helguvík. Þar hafa margir viðrað þá skoðun að erfitt verði að afla orku fyrir þetta verkefni. Þær skoðanir virðast flestar byggjast á mjög lítilli gagnaöflun eða þekkingu. Í sumum tilfellum er augljóslega leitast við að gera verkefnið tortryggilegt. „Lítum aðeins á málin í samhengi. Næg orka er til á suðvesturlandi bæði fyrir álverið í Helguvík og aðra starfsemi. Þar er einfaldast að líta til þess sem þegar er á teikniborðinu," segir á vefsíðunni. „Í dag liggur fyrir mat á umhverfisáhrifum á virkjunum á Reykjanesi, Hellisheiði og í Þjórsá sem áætlað er að muni skila 760 MW. Innifalið í þessari tölu eru ekki virkjanamöguleikar í Gráuhnjúkum og Eldvörpum, þar sem þegar eru til borholur sem skilað hafa mikilli orku. Talið er að þessi svæði muni skila a.m.k. 100 MW. Að auki gæfi Norðlingaölduveita, sem þegar hefur farið í gegnum umhverfismat, verulega aukna orku til virkjana Landsvirkjunar í Þjórsá. Sú orka jafngildir um 80 MW virkjun. Þá er enn ótalið Krýsuvíkursvæðið sem samkvæmt Rammaáætlun um nýtingu vatnsorku og jarðvarma inniheldur 5 jarðhitasvæði sem hvert um sig gæti gefið um 100 MW eða 500 MW samtals. Við þetta má svo enn bæta við að Landsvirkjun á þó nokkra óselda orku í sínum kerfum í dag. Ef allir þessir virkjanakostir eru lagðir saman fæst að orkuöflun sem þegar er á teikniborðinu á suðvesturlandi nemur um 1.500 MW. Álver í Helguvík þarf 625 MW þegar það er komið í fulla stærð eða um 40% af ofangreindum áformum." Norðurál telur því fjarstæðu að halda því fram á álverið sé að nota alla tiltæka orku. Jafnvel þótt einhverjir ofangreindra orkukosta reynist ekki hagkvæmir eða framkvæmanlegir er yfirdrifin orka til fyrir álverið í Helguvík og aðra starfsemi.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Sjá meira