Skuldabréf Glitnis skráð á lista í fyrra og á Bloomberg 9. nóvember 2009 12:00
Ráðgjafar skilanefndar Glitnis fengu senda lista yfir útgefin skuldabréf bankans í október á síðasta ári, meðal annars 140 milljarða skuldabréfin sem sagt hefur verið að hafi birst upp úr þurru. Auk þess hafa upplýsingar um útgefin skuldabréf Glitnis verið aðgengilegar á Bloomberg fréttaveitunni. Á fundi kröfuhafa Glitnis á fimmtudag í síðustu viku var greint frá því að skuldabréf upp á 140 milljarða króna hefði ekki verið bókfærð sem skuld í safni bankans. Virtust skuldabréfin því birtast eins og skrattinn úr sauðaleggnum við litla hrifningu starfsmanna skilanefndarinnar. Árni Tómasson, formaður skilanefndarinnar, sagði í fréttum okkar að nefndin hefði fyrst fengið upplýsingar um málið nokkrum dögum áður. Allar ásakanir um að nefndin hefði vitað lengur um mistökin og ekki viljað greina frá þeim væru því úr lausu lofti gripnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu fengu ráðgjafar skilanefndarinnar þó senda lista yfir öll útgefin skuldabréf Glitnis. Fyrsti listinn var sendur 28. október í fyrra og innihélt m.a. upplýsingar um umrædd skuldabréf. Þessu til viðbótar eru upplýsingar um útgefin skuldabréf bankans aðgengilegar á Bloomberg fréttaveitunni. Skuldabréfin voru því hvorki týnd né átti tilvist þeirra að koma á óvart. Greint er frá því í dag í breska blaðinu Telegraph að skilanefndin hafi nú fengið fjármálarannsóknafyrirtækið Kroll til að hafa upp á skuldabréfunum. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir þessa frétt ranga. Kroll hafi ekki verið fengið til að rannsaka málið heldur fari endurskoðunarfyrirtækið Deloitte með rannsóknina. Um bókhaldsrannsókn sé að ræða og á þessu stigi sé ekkert sem bendi til að um ólöglegan gjörning sé að ræða.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira