Yfir 12 þúsund kröfur í þrotabú Landsbankans 16. nóvember 2009 18:30
Bretar og Hollendingar fyrir hönd 350 þúsund innistæðueigenda gera rúmlega tólf hundruð milljarða króna kröfu í þrotabú Landsbankans. 600 starfsmenn gamla bankans gera launakröfur upp á hátt í fimm milljarða. Listi yfir lýstar kröfur á hendur Landsbankanum var birtur kröfuhöfum í dag. Slitastjórn bankans hefur tekið afstöðu til hluta krafnanna. Hér er um að ræða kröfur í móðurfélagið og útibú bankans, en dótturfélög eru gerð upp sérstaklega. Rúmlega 12 þúsund kröfur eru gerðar í þrotabú bankans. Bretar og Hollendingar eru formlega taldir sem tveir kröfuhafar en að baki þeim eru rúmlega 350 þúsund einstaklingar - innlánseigendur Icesave reikninganna. Íslenski innistæðutryggingasjóðurinn mun taka yfir kröfu Breta og Hollendinga þegar og ef Icesave samningarnir verða samþykktir á þingi. Að sögn Páls Benediktssonar, upplýsingafulltrúa skilanefndar bankans, eru samþykktar forgangskröfur aðallega tilkomnar vegna Icesave en þær nema um tólf hundruð og sjötíu milljörðum króna. Þá eru launakröfur 4,6 milljarðar, samkvæmt heimildum. Launakröfur eru forgangskröfur samkvæmt íslenskum lögum. Á sjötta hundrað starfsmenn gera launakröfu og er meðal launakrafan því rúm 7,5 milljón króna. Slitastjórn Landsbankans hefur ekki tekið afstöðu til allra launakrafna. Icesave reikningarnir gera það að verkum að gjaldþrot Landsbankans er umfangsmeira en hinna bankanna, enda þótt kröfur í þrotabú hinna bankanna séu jafnvel hærri. Búist er við að um 87-89% fáist upp í forgangskröfurnar - launakröfur og Icesave. Því er ljóst að ekkert mun fást upp í almennar kröfur sem nema væntanlega þúsundum milljarða.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira