Frænda Björgólfs sagt upp hjá Eimskip 9. júlí 2009 13:25
Tveir nýir framkvæmdastjórar hafa verið ráðnir hjá Eimskip. Þetta eru þeir Matthías Matthíasson og Guðmundur Nikulásson. Á móti hefur Guðmundi P. Davíðssyni verið sagt upp störfum hjá félaginu en hann er frændi Björgólfs Guðmundssonar. Í tilkynningu segir að í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar er nú unnið að breytingum á stjórnskipulagi félagsins. Markmiðið er að einfalda skipulag, ná fram hagræðingu í rekstri og reka áfram öflugt Eimskip sem er leiðandi í flutningastarfsemi á Norður-Atlantshafi. Starfsemi Eimskips á Íslandi mun í grófum dráttum skiptast í tvær einingar, annars vegar Sölu og þjónustu og hins vegar Eimskip innanlands. Unnið er að frekari breytingum á heildarskipulagi félagsins og mun verða tilkynnt um þær fyrir lok júlímánaðar. Matthías Matthíasson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Sölu og þjónustu á Íslandi. Undir Sölu og þjónustu fellur sala í inn- og útflutningi ásamt þjónustu og skjalavinnslu. Matthías hóf upphaflega störf hjá Eimskip árið 1983 og starfaði til ársins 2004. Matthías var m.a. sölustjóri í millilandaflutningum, forstöðumaður inn-og útflutnings og framkvæmdastjóri Eimskip UK. Hann hóf störf að nýju hjá Eimskip í apríl síðastliðnum, þá sem framkvæmdastjóri sérverkefna. Matthías vinnur nú að því að ljúka ýmsum sérverkefnum, m.a. á skrifstofu Eimskips í Hamborg og kemur að fullu til starfa á Íslandi um miðjan júlí. Guðmundur Nikulásson mun taka við starfi framkvæmdastjóra Eimskips innanlands og fellur þar undir rekstur á innanlandskerfi félagsins, rekstur Vöruhótels, Flytjanda, vörudreifingar á höfuðborgarsvæðinu, hafnarsvæða á Íslandi og frysti- og kæligeymslna. Guðmundur hefur starfað hjá Eimskip síðan 1997 og gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórnunarstöðum. Í ljósi skipulagsbreytinga mun Guðmundur P. Davíðsson, framkvæmdastjóri Eimskips á Íslandi, láta af störfum hjá Eimskip. Hann hóf störf hjá félaginu í september 2007. Guðmundur stýrði starfsemi Eimskips á Íslandi sem nú hefur verið skipt niður í tvö svið, Sölu og þjónustu og Eimskip innanlands, sem heyra beint undir Gylfa Sigfússon forstjóra. Eimskip þakkar Guðmundi fyrir farsæl störf í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira