Líf og fjör á skuldabréfamarkaðinum 22. apríl 2009 12:16
Líflegt var á skuldabréfamarkaði í gær og sömu sögu má segja um það sem af er morgni. Alls nam veltan í ríkisbréfum og íbúðabréfum tæplega 7,1 milljarði kr. í gær og þegar þetta er ritað (kl.11:30 f.h.) er velta dagsins tæpir 3 milljarðar kr. í fyrrnefndu bréfunum en 1,5 milljarða kr. í þeim síðarnefndu. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að krafa íbúðabréfa hefur lækkað um 16 til 36 punkta frá lokun markaða á mánudag og virðist verulegur kaupáhugi á verðtryggðum bréfum vera til staðar. Heldur minni breytingar hafa orðið á kröfu ríkisbréfa en hún hefur þó einnig þokast niður. Engin ein skýring virðist vera á þessum skyndilega fjörkipp á skuldabréfamarkaði. Þó má tína ýmislegt til. Til dæmis hafa innlánsvextir hjá helstu fjármálastofnunum lækkað nokkuð undanfarið enda virðist vera rúmt um lausafé á peningamarkaði ef marka má þróun stuttra millibankavaxta. Þá birti Íbúðalánasjóður á mánudag endurskoðaða áætlun þar sem gert er ráð fyrir minni útgáfu íbúðabréfa en áður. Í þriðja lagi styttist nú í næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans þann 7. maí næstkomandi og vænta margir þess að stýrivextir verði þá lækkaðir enn frekar eftir 2,5 prósentu lækkun þeirra frá miðjum mars.
Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent