Samorka mótmælir úrskurði umhverfisráðherra 2. október 2009 14:05
Stjórn Samorku mótmælir harðlega úrskurði umhverfisráðherra um að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar, um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar Suðvesturlínur, styrkingu raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi og öðrum framkvæmdum sem tengjast álveri í Helguvík. Í tilkynningu segir að stjórn samtakanna skori á ráðherra að draga úrskurðinn til baka nú þegar, en ella mun hann tefja framkvæmdir um ófyrirséðan tíma auk þess að valda ómældum viðbótarkostnaði. Fram hefur komið að úrskurður ráðherra hefur að engu lögbundin tímamörk og gengur að auki gegn fyrri úrskurði umhverfisráðherra frá apríl 2008. Úrskurðurinn nú er því dæmi um afleita stjórnsýslu og algert virðingarleysi við lög í landinu. Slíkt starfsumhverfi er engum fyrirtækjum boðlegt. Ennfremur lýsir stjórn Samorku verulegum áhyggjum af boðuðum umhverfis-, auðlinda- og orkusköttum, sem skila eiga ríkissjóði 16 milljarða tekjum á næsta ári. Skattheimtan hefur ekki verið útfærð ennþá en færi slík skattheimta beint út í verðlagið myndi það þýða 20-25% hækkun orkuverðs (á rafmagni og heitu vatni), að jafnaði, til heimila og fyrirtækja. Íslendingar hafa lengi búið að grænustu orku í veröldinni en jafnframt einhverri ódýrustu orku á Vesturlöndum. Nú stefnir í að hún verði eingöngu áfram sú grænasta. Slíkar skattahækkanir munu skerða samkeppnishæfni íslenskra orkufyrirtækja og draga úr ágæti Íslands sem fjárfestingarkosts fyrir hvers kyns framleiðslustarfsemi.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira