Raunvirði eigna lífeyrissjóðann minnkaði um tæp 16% 12. október 2009 12:18
Í ágústlok hafði hrein eign lífeyrissjóðanna rýrnað um 4,7% að nafnvirði frá sama mánuði árið 2008. Sé hins vegar tekið mið af verðbólgu minnkaði hrein eign að raunvirði um tæplega 16% á tímabilinu. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að ávöxtun sjóðanna var væntanlega talsvert rýrari en þessar tölur gefa til kynna, þar sem iðgjöld sjóðsfélaga eru mun meiri en útgreiðsla lífeyris. Til dæmis má nefna að árið 2007 námu iðgjöld umfram útgreiðslu lífeyris rúmum 93 milljörðum kr., sem samsvarar u.þ.b. 7,8 milljörðum kr. hreinu innflæði í mánuði hverjum. Hrein eign lífeyrissjóðanna jókst nokkuð í ágúst, aðallega vegna góðrar ávöxtunar af erlendri hlutabréfaeign og erlendum hlutabréfasjóðum. Var hrein eign sjóðanna til greiðslu lífeyris 1.738,5 milljarða kr. í lok mánaðarins og hafði þá aukist um 5,6 milljarða kr. í mánuðinum. Kemur þetta fram í tölum sem Seðlabankinn hefur nú birt. Sjóðirnir áttu í lok mánaðarins samanlagt 390,1 milljarða kr. í erlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum og hækkaði sú eign um 3,1 milljarða kr. í mánuðinum eða um 0,8%. Gott gengi hefur verið á ýmsum erlendum hlutabréfamörkuðum undanfarið og hækkaði t.d. S&P 500 hlutabréfavísitalan um 2,6% og Nasdaq um 5,5%. Vægi erlendra hlutabréfa og hlutabréfasjóða af hreinni eign til greiðslu lífeyris var um 22% í lok ágúst sem er nokkuð hátt sögulega séð og nýtist þeim vel nú þegar erlendir markaðir taka vel við sér. Talsverð óvissa er enn um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna eftir bankaáfallið undir lok síðastliðins árs. Af þeim sökum ber að taka mati á hreinni eign sjóðanna með fyrirvara. Stærsta áfallið fyrir sjóðina var af innlendri hlutabréfaeign þeirra og hefur sú eign verið færð niður. Í lok september í fyrra áttu sjóðirnir 151 milljarða kr. í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum. Um áramótin síðustu var sú staða komin í 35 milljarða kr. og hafði lækkað um 116 milljarða kr. frá því í septemberlok. Eign sjóðanna í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum var nú í lok ágúst 35 milljarða kr. eða 2% af eign sjóðanna til greiðslu lífeyris. Staða þeirra á þeim markaði er því sáralítil enda er sá markaður afar lítill. Þróun íslensku sjóðanna er þó ekkert einsdæmi. Í lok síðasta árs gaf OECD út skýrslu um áhrif fjármálakreppunnar á lífeyrissjóði í aðildarlöndunum. Var það mat stofnunarinnar að hrein eign sjóðanna í heild hefði rýrnað um tæp 20% frá upphafi ársins 2008 til októberloka það ár. Í því ljósi má segja að staða íslensku sjóðanna sé viðunandi, enda hafa ekki lífeyrissjóðakerfi annarra landa þurft að glíma við að meirihluti innlendrar hlutabréfaeignar þurrkaðist út. Ljóst er að sjóðirnir eru enn sterkir og stórir í samanburði við lífeyrissjóði annarra landa.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira