Útflutningsráð skrifar undir Global Compact 12. október 2009 09:49
Útflutningsráð nú skrifað undir Global Compact samkomulag Sameinuðu þjóðanna. Með því að skrifa undir samkomulagið skuldbindur Útflutningsráð sig til að taka þátt í umræðunni um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja á sínum vettvangi ásamt því að hvetja þau til þess að tileinka sér samfélagslega ábyrgð í starfsháttum sínum. Í frétt um málið frá Útflutningsráði segir að samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja (CSR) hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu. Vilji til þess að taka ábyrgð og hafa yfirsýn yfir áhrif sín á atvinnulífið, samfélagið og umhverfi hefur færst í vöxt meðal fyrirtækja og stofnanna um allan heim. Ísland er þar engin undantekning og hafa fyrirtæki í öllum atvinnugreinum orðið vör við að erlendir viðskiptavinir búast við því að fyrirtækin hafa yfirlýsta stefnu í samfélagsmálum. Útflutningsráð Íslands vill taka virkan þátt í þessari umræðu og hvetja íslensk útflutningsfyrirtæki til þess að innleiða samfélagslega ábyrgð sem gerir þau samkeppnishæfari á alþjóðavettvangi. UN Global Compact er alþjóðleg yfirlýsing og samkomulag á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fyrirtæki og stofnanir geta haft að leiðarljósi við innleiðingu ábyrgra starfshátta, óháð landi og atvinnugrein. Verkefnið fór af stað árið 2000 og hafa nú yfir 6.200 fyrirtæki og stofnanir í 130 löndum skrifað undir yfirlýsinguna og eru staðbundin tengslanet til staðar í yfir 80 löndum. Um 400 fyrirtæki á Norðurlöndunum hafa skrifað undir samkomulagið. Aðild að GC samkomulaginu styður við bakið á fyrirtækjum og stofnunum sem leitast við að byggja upp ímynd sína og traust á erlendum mörkuðum. Með því að undirrita GC samkomulagið skuldbindur fyrirtæki eða stofnun sig til þess að vinna að framgangi tíu grundvallarviðmiða er varða samfélagslega ábyrgð. Verkefnið hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira