Atvinnuleysi var 7,2% í september 12. október 2009 12:07
Skráð atvinnuleysi í september 2009 var 7,2% eða að meðaltali 12.145 manns og minnkar atvinnuleysi um 9,3% að meðaltali frá ágúst eða um 1.242 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,3%, eða 2.229 manns. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir að atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum 12,1% en minnst á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra 1,8%. Atvinnuleysi minnkaði á höfuðborgarsvæðinu um 11% en minnkar um 4,3% á landsbyggðinni. Atvinnuleysi minnkar um 6,6% meðal karla en minnkar um 13% meðal kvenna. Atvinnuleysið er 7,6% meðal karla og 6,7% meðal kvenna. Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði minnkar úr 7.457 í lok ágúst í 7.397 í lok september og eru þeir nú tæp 54% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en ár voru 1.024 í lok september en 779 í lok ágúst. Atvinnulausum 16-24 ára hefur fækkað og voru 2.435 í lok september en 2.643 í lok ágúst eða um 18% allra atvinnulausra í september. Alls voru 13.748 atvinnulausir í lok september. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 11.065, af þeim voru 1.084 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í viðtöl hjá ráðgjöfum stofnunarinnar og á kynningarfundi. Fækkun atvinnulausra í lok september mánaðar frá lokum ágúst nam 623, en 196 færri karlar voru á skrá og 427 færri konur. Á landsbyggðinni fjölgar um 81 en fækkar um 704 á höfuðborgarsvæðinu. Yfirleitt versnar atvinnuástandið frá september til október. Þróun síðustu vikna bendir til að svo verði einnig raunin í ár, en erfitt er að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í október 2009 aukist og verði á bilinu 7,3%-7,8%. Í fyrra var atvinnuleysið 1,9% í október.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira