SI: Bankarnir ráðleggja fyrirtækjum kennitöluflakk 6. október 2009 13:08
Í nýrri könnun sem starfsmenn Samtaka iðnaðarins (SI) hafa gert meðal umsvifamestu félagsmanna sinna kemur m.a. fram að bankarnir ráðleggja þeim að fara í kennitöluflakk. Í tilkynningu frá SI segir að spurt hafi verið um ástand og horfur. Svör bárust frá 140 félagsmönnum. Í ljós kemur að störfum hefur fækkað um 632 frá upphafi árs og til áramóta er búist við annarri eins fækkun og hefur þá starfsmönnum fækkað um 13,5% frá upphafi til loka árs. Almennt eru ekki stór áföll varðandi tapaðar útistandandi kröfur sem skýrist fyrst og fremst af meira eftirliti. Á þessu eru undantekningar og dæmi um fyrirtæki sem óttast að tapa allt að 20% af veltu ársins. Þeir sem leitað hafa til bankastofnanna um fyrirgreiðslu er flestir jákvæðir en margir nefna ákvarðanafælni. Starfsmenn banka virðast ekki hafa umboð frá stjórn og eigendum til að taka nauðsynlegar ákvarðanir. Kvartað er undan því að vonlausum fyrirtækjum sé haldið á floti á meðan lítið sé gert fyrir fyrirtæki með góða rekstrarsögu. Bankarnir ráðleggja kennitöluflakk. Svört atvinnustarfssemi er meira áberandi en áður og eftir því sem fyrirtækin eru minni þeim mun meira áberandi eru nótulaus viðskipti. Þegar spurt er um ráð til stjórnvalda sem gætu komið atvinnulífinu til góða nefna flestir lækkun vaxta, að koma bönkunum af stað, afléttingu gjaldeyrishafta og styrkingu krónunnar auk opinberra framkvæmda. Einnig er nefnt að opinberir aðilar geti í enn meira mæli notað íslenskar vörur og þjónustu.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira