Havilland þjónustar Tortólufélag Gunnlaugs Sigmundssonar 20. nóvember 2009 12:48 „
Eitt af félögunum sem Havilland sér nú um er GSSG Holding, stofnað í desember 2000 á heimilisfangi Kaupþings. Í félagið voru þá lagðar 260 milljónir króna. Eins og oft voru það tvö Tortólufélög í eigu Kaupþings sem stofnuðu félagið. Stjórnarmaður í félaginu var þá Gunnlaugur Sigmundsson sem var þingmaður Framsóknar 1995-1999 og hefur víða komið við í íslensku viðskiptalífi."Þetta segir Sigrún Davíðsdóttir í pistli sem hún flutti í Speglinum á RUV í gærdag og hefur verið birtur á heimasíðu RUV. Upplýsingarnar hefur hún úr Lögbirtingarblaði Lúxemborgar. Havilland er bankinn sem keypti dótturfélag Kaupþings í Lúxemborg en við þau kaup kom fram hjá hinum nýju eigendum, Rowland-fjölskyldunni bresku, að fyrirtækjamenning Kaupþings yrði lögð af og íhaldssöm bankastarfsemi tæki við.Sigrún segir að Havilland hafi þó áhuga á viðskiptum við Íslendinga. Spegillinn veit til að haft hafi verið samband við ýmsa íslenska viðskiptavini Kaupþings í Lúxemborg til að tryggja viðskipti þeirra. Spegillinn hefur áður rakið að Kaupþing var öflugt í að stofna eignarhaldsfélög fyrir efnaða Íslendinga þegar frá 1999 - og á næstu árum voru stofnuð um 150 slík félög.„Þarna eru aðeins meðtalin félög einstaklinga með eitt félag, ekki félagaklasar tengdir stórtækustu umsvifamönnunum. Eins og áður hefur komið fram voru þessi félög sannkallaðar fjallabaksleiðir í skattkerfinu - alveg undir viðskiptavinum komið hvort þeir gáfu félögin upp eða ekki," segir Sigrún.„En hvernig hefur þessum félögum einstaklinga vegnað eftir hrunið? Gjaldeyrishöftin breyttu litlu nema að eigendur félaganna gátu auðvitað ekki lengur flutt fé úr landi. Spegillinn hefur kannað lauslega hvernig þessum íslensku félögum einstaklinga hefur reitt af. Mörg hafa verið leyst upp undanfarin ár - en í haust hefur Havilland flutt til sín 24 félög í eigu Íslendinga sem áður voru hjá Kaupþingi. Havilland hefur að öllum líkindum keypt Tortólufélög sem Kaupþing átti og notaði til að setja upp félög því þessi félög koma enn við sögu."Ennfremur kemur fram í máli Sigrúnar að miðað við hvernig félagið GSSG Holding er sett upp má álykta að Gunnlaugur eigi í raun þetta félag enn. Gunnlaugur er faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins.„Í febrúar 2006 urðu Tortólufélögin stjórnendur í stað Gunnlaugs. GSSG Holding hefur ekki verið leyst upp og ekki tilkynnt um nýjan eiganda svo ætla má að Gunnlaugur Sigmundsson sé enn eigandi þess. Nú er það Havilland bankinn sem sér um GSSG Holding," segir Sigrún.„Skráning Havilland á íslensku félögunum sýnir að einhverjir Íslendingar eru enn ekki orðnir afhuga aflandsþjónustunni sem gefst í Lúxemborg."
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira