Enn eru háar bónusgreiðslur við lýði 15. júlí 2009 15:30 Frá London.
Starfsmenn fjárfestingabankans Goldman Sachs eiga von á því að fá að meðaltali um 770 þúsund bandaríkjadala bónusgreiðslur, jafnvirði um 98 milljónum króna, á árinu í kjölfar góðrar afkomu bankans á fyrri helmingi ársins. Hagnaður bankans nam 3,4 milljörðum dala á öðrum ársfjórðungi og kom sú niðurstaða mjög á óvart beggja vegna Atlantshafsins. Times online greinir frá þessu. Bónusgreiðslurnar koma einungis nokkrum dögum eftir að Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, sagði að háar bónusgreiðslur hafi valdið kæruleysislegum ákvörðunum bankastarfsmanna. Ýmsar ákvarðanir bankastarfsmanna víðs vegar um heiminn hafi síðar leitt til lánsfjárkrísunnar á fjármálamörkuðum. Efnahagsvandræðin í heiminum eru bein afleiðing lánsfjárkrísunnar. Starfsmenn Goldman Sachs í London eru 5.500 talsins og hefur bankinn eyrnamerkt 6,65 milljarða dala í laun og bónusgreiðslur á meðan flestir bankar á fjármálamarkaði eiga í mestu vandræðum með að endurskipuleggja rekstur sinn. Þessar fréttir koma verulega á óvart, sérstaklega í ljósi þess að aðeins eru níu mánuðir síðan bankinn fékk tíu milljarða dala lán frá bandaríska ríkinu. Lánið var endurgreitt í síðasta mánuði. Mikil gagnrýni hefur verið á þeim gríðarháu bónusgreiðslum sem viðgengist hafa á fjármálamörkuðum og hefur forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, meðal annars ekki legið á skoðun sinni hvað bónusgreiðslur á fjármálamörkuðum varðar. Goldman Sachs er líklegur til að skila mestum hagnaði fjárfestingabanka á þessu ári en von er á því að fleiri bankar skili einnig góðum afkomum á árinu. Má þar nefna JP Morgan, Morgan Stanley og Barclays, von er á því að þessir bankar greiði starfsmönnum sínum vænar bónusgreiðslur fyrir árangur ársins.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira