Iceland Express færir sig um set til Gatwick 1. maí 2009 11:16 Frá vinstri: Matthías Imsland forstjóri Iceland Express, Kristján Möller samgönguráðherra, Ian Whitting sendiherra Breta á Íslandi og Björn Óli Hauksson flugvallarstjóri klippa á borðann nú í morgun til marks um fyrsta flug félagsins til London-Gatwick.
Iceland Express flýgur frá og með 1. maí til Gatwick flugvallar í London í stað Stansted. „Við höfum um skeið verið að velta fyrir okkur að færa okkur yfir til Gatwick, þaðan er styttra í miðborgina og að mörgu leyti þægilegra fyrir okkar farþega," segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express. Matthías bendir á að tímasetningin að hefja flugið nú, sé líka einkar hagstæð, því framundan sé annatími í fluginu, bókanir hafi aldrei verið fleiri og það að lenda á Gatwick dragi síst úr. „Við erum mjög ánægð og lítum svo á, að nú sé að hefjast nýr kafli í sögu félagsins," segir Matthías. Í tilkynningu frá Iceland Express segir að félagið verði með aðstöðu á South terminal. Gatwick er vel staðsettur flugvöllur rétt sunnan við London og þaðan er flogið til allra átta, enda fljúga flugfélög á borð við easyJet, British Airways og US Airways þaðan. „Möguleikar farþega félagsins aukast því enn á fjölbreyttu og ódýru tengiflugi til allra heimshorna. Það eru því orð að sönnu, að leiðir liggi til allra átta, eins og segir í dægurlagatextanum - frá Gatwick," segir ennfremur. Iceland Express mun fljúga til London-Gatwick átta sinnum í viku. Um leið falla niður ferðir félagsins til Stansted flugvallar.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira