Góðar líkur á besta þjónustujöfnuði síðan 1990 16. október 2009 11:57 „
Af þróun kortaveltunnar má þannig ráða að talsverður afgangur muni reynast af þjónustujöfnuði á þriðja fjórðungi ársins, og teljum við ekki úr vegi að ætla að hann gæti orðið á bilinu 12-18 milljarðar kr. Ef grunur okkar reynist réttur verður afgangurinn á þriðja ársfjórðungi sá mesti síðan Seðlabankinn hóf að taka saman ársfjórðungslegar greiðslujafnaðartölur árið 1990." Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir ennfremur að þessi afgangur hefur töluverða þýðingu fyrir gengi krónu, því færa má fyrir því rök að afgangur af þjónustujöfnuði skili sér mun greiðlegar inn á gjaldeyrismarkað en samsvarandi afgangur af vöruskiptum við útlönd. Heldur virðist tekið að draga úr samdrætti einkaneyslu á ársgrundvelli, enda voru heimilin þegar farin að draga töluvert úr neyslu sinni á seinni hluta síðasta árs. Nýbirtar tölur Seðlabankans um greiðslumiðlun eru til marks um þetta. Samkvæmt þeim nam kreditkortavelta í september 25,9 milljörðum kr. og hefur ekki verið meiri að nafnvirði frá sama mánuði í fyrra. Sé veltan hins vegar staðfærð með vísitölu neysluverðs og gengisvísitölu kemur upp úr dúrnum að hún var ríflega 18% minni að raunvirði í september en á sama tíma í fyrra. Samdrátturinn er sér í lagi mikill í erlendri kortaveltu, sem dróst saman að raunvirði um tæp 40% á milli ára, á meðan raunlækkun innlendrar kortaveltu var 12,5% á sama tíma. Auk vísbendinga um einkaneyslu má úr tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun fá nasasjón af þróun þjónustujafnaðar, enda birtir bankinn tölur yfir notkun erlendra greiðslukorta hér á landi, ekki síður en kortanotkun Íslendinga erlendis. Út frá þessum tölum má reikna eins konar kortanotkunarjöfnuð sem endurspeglar þann hluta þjónustujafnaðar sem snýr að ferðamennsku milli landa. Talsverð fylgni er milli þróunar þessarar stærðar annars vegar, og þróunar þjónustujafnaðar hins vegar, enda eru áhrif raungengis og hagsveiflu nokkuð sambærileg á ferðamennskuhluta þjónustujafnaðar og aðra hluta hans.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Sjá meira