Kaupþing yfirtekur Sparisjóð Mýrasýslu 3. apríl 2009 17:15
Sparisjóður Mýrasýslu hefur samið við stærstu lánadrottna sína og gert samning við Nýja Kaupþing um að bankinn kaupi allar eignir sparisjóðsins. Í tilkynningu segir að þetta hafi verið gert til þess að tryggja áframhaldandi þjónustu við viðskiptavini sjóðsins og með hagsmuni samfélagsins í huga. „Bankinn mun greiða fyrir eignirnar með skuldabréfi og útgáfu nýrra hluta í samræmi við þá tillögu sem stærstu lánardrottnar hafa samþykkt. Samhliða þessu eignast Nýja Kaupþing allt stofnfé í SPM. Samningurinn er háður endanlegu samþykki Fjármálaeftirlitsins," segir ennfremur. „Með kaupunum yfirtekur Nýja Kaupþing allar eignir og skuldir SPM, þar með talin innlán, sem eru að fullu tryggð," segir ennfremur og þess getið að Nýja Kaupþing taki við rekstri afgreiðslu SPM í Borgarnesi. „Stefnt er að sameiningu útibúa Nýja Kaupþings og SPM í Borgarnesi á næstu vikum. Bernhard Þór Bernhardsson sparisjóðsstjóri SPM tekur við sameinuðu útibúi SPM og Nýja Kaupþings." Jafnframt mun Nýja Kaupþing eignast dótturfélög SPM, þar með talið Afl Sparisjóð og Sparisjóð Ólafsfjarðar. Stefnt er að rekstri þeirra í óbreyttri mynd. Að endingu segir að Sparisjóður Mýrasýslu hafi átt í miklum fjárhagsörðugleikum undanfarin misseri. „Með þessu næst farsæl lausn á vanda hans sem lánardrottnar, viðskiptavinir, starfsfólk og aðrir hagsmunaðilar geta verið sáttir við. Þá er ekki lengur þörf á eiginfjárframlagi frá ríkissjóði eins og sparisjóðurinn hefur kost á samkvæmt neyðarlögunum."
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira