Greining: Stórir ókostir við leið Stiglitz 9. september 2009 13:30 „
Slíkt fyrirkomulag hefði þó einnig stóra ókosti. Þótt launavísitala hækki lítið þessa dagana á meðan vísitala neysluverðs hefur hækkað ört undanfarið leiðir skoðun á lengri tímabilum hið gagnstæða í ljós. Til langs tíma litið eykst kaupmáttur launa eftir því sem framleiðni vinnuaflsins eykst." Þetta segir í Morgukorni greiningar Íslandsbanka þar sem rætt er um hugmyndir Joseph Stiglitz um að breyta verðtryggingu húsnæðislána þannig að miðað sé við launavísitölu en ekki vísitölu neysluverðs. Í Morgunkorninu segir að bandaríski hagfræðingurinn Joseph Stiglitz reifar í fjölmiðlum í dag hugmynd um að breyta verðtryggingu húsnæðislána. Hugmynd hans er sú að öllum verðtryggðum lánasamningum verði breytt á þá lund að þeir miði við launavísitölu í stað vísitölu neysluverðs. Ráðamenn eru jákvæðir fyrir þessari hugmynd ef marka má fjölmiðla í morgun. Slíkt fyrirkomulag hefur tvo kosti helsta fyrir lántakendur. Í fyrsta lagi verður meira samræmi í þróun greiðslugetu og greiðslubyrði ef miðað er við launaþróun en ef verðlag er viðmiðið. Einnig eru minni sveiflur í þróun launavísitölu en vísitölu neysluverðs frá einu ári til annars. Frá ársbyrjun árið 1991 hefur ársbreyting launavísitölunnar sveiflast á bilinu 0,8 - 13,1% en sambærilegt bil fyrir vísitölu neysluverðs er -0,1 - 18,6%. Breytingar á launavísitölu fylgja auk heldur hagsveiflunni á meðan verðbólgan hefur tilhneigingu til að hækka snarpt í kjölfar falls krónu á samdráttartímum, og auka þar með við erfiðleika skuldara á samdráttartímum. Fyrirkomulag Stiglits gæti því stutt betur við hagstjórnina hvað þetta varðar en núverandi fyrirkomulag gerir. Slíkt fyrirkomulag hefði þó einnig stóra ókosti. Þótt launavísitala hækki lítið þessa dagana á meðan vísitala neysluverðs hefur hækkað ört undanfarið leiðir skoðun á lengri tímabilum hið gagnstæða í ljós. Til langs tíma litið eykst kaupmáttur launa eftir því sem framleiðni vinnuaflsins eykst. Frá ársbyrjun 1991, þegar áhrif þjóðarsáttar voru að mestu leyti komin fram, til júlí í ár jókst kaupmáttur launa að jafnaði um 1,5% á ársgrundvelli. Launavísitalan hefur þannig hækkað um 29% umfram hækkun vísitölu neysluverðs á tímabilinu, þrátt fyrir neikvæða kaupmáttarþróun undanfarið. Hefðu íbúðalán almennt verið tengd launavísitölu í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar hefði höfuðstóll þeirra og greiðslubyrði því hækkað að sama skapi hraðar. Það kann því að vera skammgóður vermir fyrir lántakendur að viðmiði verðtryggðra lána verði breytt á þennan hátt. Þá eru ótalin þau neikvæðu áhrif sem slík einhliða ákvörðun um veigamikla breytingu á skuldabréfamarkaði gæti haft á traust fjárfesta á markaðinum. Má þar nefna lífeyrissjóði, sem leggja til drjúgan hluta fjármögnunar íbúðalána, bæði beint og í gegn um kaup sín á íbúðabréfum. Þess má geta að lánveitendur verðtryggðra íbúðalána bjóða allir upp á greiðslujöfnun, sem byggir á tengingu við launavísitölu og atvinnustig en hefur hins vegar ekki þau varanlegu áhrif á þróun höfuðstóls sem leið Stiglitz myndi hafa. Stiglitz nefnir einnig að samhliða breytingu verðtryggingar ætti að lengja lánstíma íbúðalána verulega og lækka með því greiðslubyrðina. Á þessari hugmynd er sá hængur að svonefnd jafngreiðslulán, stundum kölluð annuitetslán, eru útbreiddasta form verðtryggðra lána á Íslandi. Það fyrirkomulag lágmarkar greiðslubyrði í upphafi lánstíma en á móti kemur að afar hægt gengur á höfuðstól lánsins á fyrri helmingi lánstímans. Lenging slíkra lána hefur því fremur lítil áhrif á greiðslubyrði vegna þeirra, en seinkar eignamyndun og leiðir til hærri heildargreiðslna af lánunum. Má segja að það fyrirkomulag sem ráðandi hefur verið á íbúðalánamarkaði undanfarna áratugi gangi þegar lengra en góðu hófi gegnir í þá átt að lágmarka greiðslubyrði á kostnað eignamyndunar, þótt frekari skref séu ekki stigin í þá átt.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira