Lífið

Jógvan syngur lag Bubba í Eurovision

Mikill heiður að syngja lag Bubba og Óskars Páls.
Mikill heiður að syngja lag Bubba og Óskars Páls.

Jógvan Hansen mun syngja Eurovision-lag Óskars Páls Sveinssonar og Bubba Morthens. Færeyski söngvarinn segir þetta vera einn af hápunktum ferils síns; Bubbi hafi verið eini íslenski tónlistarmaðurinn sem hann hafi þekkt til áður en hann kom til Íslands, Færeyingar þekki til að mynda lagið Það er gott að elska ákaflega vel. Og Óskar Páll samdi lagið Hvern einasta dag en það færði Jógvan sigur í X-Factor. „Þetta er mikill heiður og framar öllum mínum vonum. Ég hefði verið heimskasti maður Íslands og jafnvel Færeyja líka ef ég hefði sagt nei við þessu tilboði,“ segir Jógvan.

Bubbi bar mikið lof á hæfileika Jógvans þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Bubbi er reyndar búinn að glíma við flensu undanfarnar tvær vikur og upplýsir, í framhjáhlaupi, að hann hafi reynt að tala sem minnst undanfarna daga. „Og eflaust eiga einhverjir eftir skella uppúr þegar þeir lesa þetta.“ En þá að Eurovision-laginu. Bubbi segir Jógvan hafa í raun allt til brunns að bera til að geta náð langt í tónlistarbransanum. „Jógvan er fyrst og fremst afbraðgs söngvari, hann hefur sterka sviðsnánd og kemur vel fyrir í alla staði. Hans rödd mun henta mjög vel því sem við erum að pæla í að gera og skemmir útlitið ekki fyrir.“

Bubbi hefur alla tíð verið mikill talsmaður þess að syngja á íslensku en enskan hefur smám saman verið að taka yfir í hinni íslensku forkeppni. Bubbi segir að það muni ráðast með teningakasti hvort verður ofaná, íslenskan eða enskan. „Og svo verður sá sem tapar bara að bíta í það súra epli að lenda undir.“

-fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×