Álverðið hefur hækkað um 100 dollara í vikunni 18. september 2009 12:52
Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað um rúmlega 100 dollara í vikunni. Þessa stundina stendur verðið í 1.946 dollurum á tonnið m.v. þriggja mánaða framvirka samninga sem er helsta viðmiðunarverðið á þessum markaði. Til samanburðar má nefna að verðið nam 1.834 á tonnið á þriðjudaginn var. Það sem af er ári hefur verðið hæst farið í 2.070 dollara á tonnið í upphafi síðasta mánaðar. Lægst varð verðið hins vegar 1.288 dollarar á tonnið undir lok febrúar síðastliðins. Töluverðar sveiflur hafa verið á álverðinu undanfarnar vikur á bilinu frá 1.830 og upp í 1.950 dollara. Í vikunni fjallaði greining Íslandsbanka um verðþróunina í Morgunkorni sínu. Þar kom fram að vaxandi trú manna á að hið versta sé brátt að baki í helstu hagkerfum heims hefur stutt við álverð undanfarna mánuði, líkt og raunin er með ýmsa aðra hrávöruflokka. Hinsvegar hafa áhyggjur vaxið síðustu vikur af því að eftirspurn eftir iðnaðarmálmum kunni að hafa verið ofmetin í gleðinni yfir skánandi hagvaxtarhorfum, auk þess sem vísbendingar eru um að Kínverjar kunni að auka álútflutning sinn á næstunni. Sérfræðingar á markaði eru fremur bjartsýnir á þróun álverðs næsta kastið. Samkvæmt samantekt Bloomberg telja þeir að jafnaði að verðið á áltonni verði að meðaltali 1.918 dollarar á næsta ári og ríflega 2.200 dollarar árið 2011. Gangi þær spár eftir verður það jákvætt fyrir íslenskt efnahagslíf.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira