Norskur fjárfestir kaupir hlut í MP Banka 18. september 2009 21:05 Margeir Pétursson
Norski fjárfestirinn Endre Røsjø og MP Banki hf. hafa náð samkomulagi um að Røsjø eignist hlut í bankanum að loknum fyrirhuguðum hluthafafundi í næsta mánuði og verði þar með virkur hluthafi við framtíðarþróun bankans. Endre Røsjø á að baki langan og farsælan feril í banka- og fjárfestingastarfsemi, allt frá árinu 1970. Á meðal núverandi fjárfestinga hans er norska fjárfestingafélagið Centennial og verðbréfafyrirtækið Pinemont Securities í London sem er aðili að kauphöllinni þar. Á meðal fyrri fjárfestinga Røsjø er Pinemont Bank í Texas í Bandaríkjunum sem hann seldi fyrir nokkrum árum. Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri MP Banka, er mjög ánægður með fjárfestingu Røsjø. „MP Banki er vel í stakk búinn til að styrkja stöðu sína á markaðnum, en bankarekstur er krefjandi verkefni við núverandi aðstæður á Íslandi. Það er mjög jákvætt fyrir okkur að jafnreyndur fjármálamaður og Røsjø gangi til liðs við bankann. Honum líst mjög vel á rekstrarhorfur bankans og aðkoma hans eykur möguleika bankans til að nýta tækifærin og takast á við ný verkefni." Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP Banka, er einnig mjög ánægður með ákvörðun Røsjø. „Stjórn MP Banka og stærstu hluthafar átta sig vel á því að ef MP Banki vill verða í leiðandi stöðu á markaðnum þá þarf bankinn að vera í dreifðara eignarhaldi. Fjárfesting Endre Røsjø er fyrsta skrefið í þá átt og við erum að vinna að því að fá fleiri stofnanafjárfesta að bankanum." Endre Røsjø telur fjárfestingu sína í íslenskum banka fela í sér mikil tækifæri og vonast til að koma að fleiri verkefnum á Íslandi á næstunni, m.a. í gegnum norrænan fjárfestingasjóð. „MP Banki var eins og ég sjálfur mjög áhættufælinn á árunum 2007-8 og lagði áherslu á ríkisskuldabréf. Hrunið var mikil þolraun fyrir fjármálafyrirtæki eins og MP Banka og forysta hans og starfsfólk hafa sannað að þau eru þrautseig og traust. Mér líst vel á að þróa bankann áfram með þeim. Ég heimsótti Ísland í vor að frumkvæði fyrrum Seðlabankastjóra, Svein Harald Øygard, til að kanna hvort ég og aðrir norrænir fjárfestar gætum fjárfest hér og með því örvað efnahagslífið. Ég væri mjög ánægður ef þessi fyrsta fjárfesting mín gæti eflt traust á íslenska bankakerfinu." Þetta kemur fram í tilkynningu frá MP banka.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira