SI: Vinnubrögð stjórnvalda valda töfum og tjóni 18. september 2009 12:01
Samtök iðnðarins (SI) gagnrýna harðlega vinnubrögð stjórnvalda í samskiptum við erlenda fjárfesta og uppbyggingu iðnaðar sem reiðir sig á nýtingu orkuauðlinda. Stjórnvöld eru ekki samstiga og senda frá sér misvísandi skilaboð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum um málið. Þar segir að ekkert sé brýnna um þessar mundir en að rjúfa kyrrstöðu og samdrátt sem eru að draga allan mátt úr stórum hluta atvinnulífsins og þar með mörgum heimilum. "Mikilvægur þáttur í því verkefni er að örva fjárfestingar og framkvæmdir sem leiða til nýtingar orkuauðlinda og starfrækslu fyrirtækja sem skapa vinnu og gjaldeyristekjur okkur til handa. Dapurlegt er að fylgjast með vinnubrögðum stjórnvalda sem á köflum virðast hafa það að markmiði að tefja og helst koma í veg fyrir uppbyggingu í stað þess að gera allt sem unnt er til þess að hraða henni. Stjórnvöld eru ekki samstiga og senda frá sér misvísandi skilaboð. Þetta er sérlega áberandi þegar erlendir fjárfestar og nýting orkuauðlinda á í hlut. Gildir þá einu hvort fyrirtækin hafa starfað hér í áraraðir eða um nýja aðila er að ræða. Nefna má fjölmörg dæmi í þessu samhengi, s.s. tafir og seinagang varðandi mat á umhverfisáhrifum línulagna til Helguvíkur, stækkunina í Straumsvík, tregðu til þess að endurnýja einfalda viljayfirlýsingu vegna framkvæmda við Bakka, seinagang við að skýra reglur vegna starfsemi gagnavers á Suðurnesjum og óvænt inngrip í fjárfestingar í orkugeiranum svo eitthvað sé nefnt. Samtök iðnaðarins skora á stjórnvöld að taka þessi mál öðrum og fastari tökum. Það er of mikið í húfi til þess að hægt sé að una því að mikilvæg verkefni dragist úr hömlu eða fjárfestar hrökklist frá landinu," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira