OECD: Lífsnauðsyn að koma ríkisfjármálum á réttan kjöl 20. nóvember 2009 08:09
Aðgerðir til að koma ríkisfjármálunum á réttan kjöl eru sagðar lífsnauðsynlegar í Íslandskafla nýrrar hagspár Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Lögð er áhersla á að þær verði að fullu komnar til framkvæmda hið fyrsta til þess að rekstur ríkissjóðs verði sjálfbær á ný.Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans þar sem fjallað er um nýja skýrslu OECD. Í henni er lagt er til að áherslur peningastefnunnar verði áfram að halda genginu stöðugu en að gjaldeyrishöftum verði aflétt eins fljótt og mögulegt er til að ná að nýju tengslum við erlenda fjármagnsmarkaði, fyrirtækjum til hagsbóta.Í skýrslunni, sem ber heitið „Economic Outlook" og OECD gefur út tvisvar sinnum á ári, er fjallað um þá þætti sem hafa áhrif á framþróun efnahagsmála til skemmri tíma og hvert hagkerfi aðildarríkjanna stefna. Þá er ennfremur fjallað um hvernig megi stuðla að vexti og stöðugu verðlagi innan aðildarríkjanna. Í ritinu er því hagspá fyrir hin 30 aðildarríki OECD auk 10 annarra ríkja sem og evrusvæðisins.Í Hagsjánni segir að óvissa um bata hagkerfa heimsins og fjármálakerfa eru stórir áhættuþættir og eiga við hagspár allra landanna samkvæmt OECD. Þá eru að auki teknir fyrir sérstakir áhættuþættir fyrir Ísland en þar eru afnám gjaldeyrishafta annars vegar og tímasetning hugsanlegra stóriðjuframkvæmda hins vegar efst á blaði.Tekið er fram að lækki gengi krónunnar mikið við afnám gjaldeyrishaftanna muni það hafa neikvæð áhrif á heimilin og fyrirtækin í landinu. Gefi gengið hins vegar lítið eftir, eða hækki, muni þvert á móti draga úr vandræðum heimila og fyrirtækja sem skuldsett eru í erlendum gjaldmiðlum og gæti þá Seðlabankinn í kjölfarið lækkað stýrivexti.
Mest lesið Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Rannsókn: Vinnustaðapartí algengur vettvangur kynferðislegrar áreitni Atvinnulíf Allir sýknaðir í Aurum-málinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira