Viðskipti innlent

Atvinnuleysi minnkar töluvert, var 7,7% í ágúst

Skráð atvinnuleysi í ágúst 2009 var 7,7% eða að meðaltali 13.387 manns og minnkar atvinnuleysi um 2,7% að meðaltali frá júlí eða um 369 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,2%, eða 2.136 manns.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um atvinnuleysið sem birt hefur verið á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir m.a. að þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 12.526, af þeim voru 861 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í viðtöl hjá ráðgjöfum stofnunarinnar og á kynningarfundi.

Atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum 11,4% en minnst á Vestfjörðum 1,3%. Atvinnuleysi minnkaði á höfuðborgarsvæðinu um 2,5% en minnkar um 3,2% á landsbyggðinni.

Atvinnuleysi minnkar um 3,6% meðal karla en minnkar um 1,5% meðal kvenna. Atvinnuleysið er 7,9% meðal karla og 7,5% meðal kvenna. Langtímaatvinnuleysi eykst og þeir sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði voru 7.457 í lok ágúst en 7.184 í lok júlí og eru nú um 52% allra á atvinnuleysisskrá.

Þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en ár voru 779 í lok ágúst en 629 í lok júlí. Atvinnulausum 16-24 ára hefur fækkað og voru 2.643 í lok ágúst en 3.151 í lok júlí eða um 18% allra atvinnulausra í ágúst.

Yfirleitt batnar atvinnuástandið frá ágúst til september, m.a. vegna þess að skólafólk fer af vinnumarkaði. Erfitt er að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu, en líklegt er að atvinnuleysið í september 2009 minnki og verði á bilinu 7,3%-7,8%. Í fyrra var atvinnuleysið 1,3% í september.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×