Viðskipti innlent

Töluvert dregur úr tapi Bakkavarar milli ára

Tap Bakkavarar á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 8,1 milljónum punda, eða rúmum 1,5 milljarði kr. á tímabilinu samanborið við 12,8 milljóna punda tap á sama tímabili í fyrra.

Velta nam 410 milljónir punda á fyrsta ársfjórðungi, sem er 9% aukning m.v. sama tímabil í fyrra.

Handbært fé frá rekstri fyrir skatta, vexti og einskiptiskostnað vegna hagræðingaraðgerða, nam 1,3 milljón punda á fyrsta ársfjórðungi 2009, samanborið við 6,4 milljónir punda á fyrsta ársfjórðungi 2008.

„Við náðum góðri söluaukningu á fyrsta fjórðungi ársins miðað við núverandi efnahagsaðstæður, en aukninguna má einkum rekja til sveigjanleika í framleiðslu félagsins, aukningar markaðshlutdeildar í Bretlandi og aukningar í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum," segir Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar í tilkynningu um uppgjörið.

„Þessi aukna sala sýnir vel styrk starfsemi okkar á samdráttartímum en við reiknum með að sala haldi áfram að aukast þrátt fyrir að hægist um í alþjóðahagkerfinu."

Ágúst segir ennfremur að félagið geri ráð fyrir að fyrsti ársfjórðungur marki síðasta tímabil lækkunar á framlegð félagsins, nú þegar áhrifa af hagræðingaraðgerðum í rekstri félagsins hættir að gæta og þess að aðgerðir til að lágmarka áhrif verðhækkana á hráefni á reksturinn, auka hagkvæmni og hámarka nýtingu taki að skila bættri afkomu.

„Félagið á enn í viðræðum við stærstu eigendur skuldabréfa Bakkavör Group hf., en stjórn félagsins er vongóð um að viðræðurnar muni skila árangri og að gjalddagi skuldabréfanna fáist framlengdur. Á fyrsta ársfjórðungi tilkynntum við að félagið hefði tryggt fjármögnun allra rekstrarfélaga samstæðunnar til næstu þriggja ára en þessir samningar sýna trygga fjárhagsstöðu rekstrarfélaganna," segir Ágúst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×