Sennilegt að gjaldeyrishöft verði milduð á næstu mánuðum 2. mars 2009 11:57
Greining Íslandsbanka telur sennilegt að gjaldeyrishöft Seðlabankans verði milduð á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. Eins og kunnugt er af fréttum í morgun ætlar Seðlabankinn ekki að aflétta gjaldeyrishöftunum að sinni en reiknað er með að áætlun um afléttingu þeirra verði eitt af höfuðatriðunum í viðræðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við stjórnvöld í þessari viku og næstu. Í Morgunkorninu segir að Seðlabankinn taki fram að unnið sé að áætlun um afnám núverandi gjaldeyrishafta í áföngum, en höftunum þarf að vera að fullu aflétt fyrir nóvemberlok árið 2010. Hnykkir bankinn á því að eitt af megin viðfangsefnum yfirstandandi endurskoðunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á efnahagsáætlun þeirra sé mat á því hvort forsendur séu að skapast fyrir því að hægt sé að gefa fjármagnsflutninga til og frá landinu frjálsa á ný. „Í því efni togast væntanlega á annars vegar hættan á stórfelldum fjármagnsflótta og gengishruni ef farið verður of geyst í afléttingu hafta áður en trú á gjaldmiðlinum og íslensku efnahagskerfi hefur aukist á ný, og hins vegar þrýstingur á að höftunum verði aflétt fyrr en síðar þar sem þau standast ekki alþjóðasáttmála og ganga gegn meginstefnu AGS um frjálst flæði fjármagns milli aðildarlanda sjóðsins. Ekki er því ósennilegt að einhver skref verði stigin í átt til mildunar haftanna á næstu mánuðum, og munu línur væntanlega skýrast í því efni við lok yfirstandandi heimsóknar AGS," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt Atvinnulíf Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Viðskipti innlent Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Velta heilsulinda jókst töluvert Viðskipti innlent Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 Samstarf G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Samstarf Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Atvinnulíf Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Sjá meira