FIH verður ekki seldur í bráð 29. október 2009 05:00 Í nýrri skýrslu um stöðu þrotabús Kaupþings kemur fram að vel gengur að endurskipuleggja eignir og endurheimta kröfur.Fréttablaðið/GVA
Danski bankinn FIH er traustur og verður ekki seldur við núverandi markaðsaðstæður enda má við því búast að betra verð fáist fyrir hann þegar fjármálamarkaðir rétta úr kútnum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í uppfærðri skýrslu skilanefndar Kaupþings um þrotabú bankans og kom út í gær. Kaupþing keypti FIH árið 2004 en Seðlabanki Íslands tók hann að veði gegn fimm hundruð milljón evra láni til Kaupþings í fyrrahaust. Nokkur endurskipulagning hefur átt sér stað innan FIH síðan þá, að því er segir í skýrslunni. Bankinn endurfjármagnaði sig með milljarðs dala skuldabréfaútgáfu í Bandaríkjunum í ágúst. Þá kemur fram í skýrslu skilanefndarinnar að endurskipulagning eignasafna og endurheimtur lána gangi vel. Í lok september hafi verið lokið við endurheimtur á 29 milljörðum króna hjá viðskiptavinum í Evrópu. Það jafngildir því að 17,2 prósent viðskiptavina hafi greitt kröfur sínar að fullu á Norðurlöndunum en 7,7 prósent á meginlandi Evrópu. Þá segir að búið sé að endurskipuleggja fjörutíu prósent af eignasafni gamla bankans í Evrópu og ellefu prósent á Norðurlöndunum. Til samanburðar voru 76 prósent eigna gamla Kaupþings á Norðurlöndunum á athugunarlista skilanefndarinnar í desember í fyrra en 44 prósent á Norðurlöndunum. - jab
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira