Mikil fækkun á utanlandsferðum Íslendinga 11. júní 2009 12:26
Í maí síðastliðnum ferðuðust 22.500 Íslendingar til útlanda samkvæmt tölum um brottfarir úr Leifsstöð. Er þetta fækkun um 42% frá sama mánuði fyrir ári síðan þegar 38.500 Íslendingar lögðu land undir fót. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að ferðalögum Íslendinga til útlanda hefur nú fækkað samfellt undanfarna 12 mánuði en mjög herti á samdrættinum í kjölfar bankahrunsins og falls krónunnar síðastliðið haust. Allt frá október í fyrra hafa utanlandsferðir Íslendinga verið um það bil helmingi færri en árið á undan. Ekki er óeðlilegt að ferðalög til útlanda dragist saman þegar skóinn kreppir, enda meðal hagsveiflutengdustu útgjalda heimilanna. Þá er raungengi krónunnar nú nálægt sögulegu lágmarki sem segir þá sögu að kaupmáttur Íslendinga í útlöndum hefur sjaldan verið minni en nú sem hvetur síst til ferðalaga. Ferðir landsmanna hafa nú dregist stórlega saman frá því þegar mest var sumarið 2007. Í júlí 2007 voru brottfarir Íslendinga um Leifsstöð 55 þúsund talsins og hafa þá aldrei verið fleiri enda voru væntingar Íslendinga um efnahagsástandið og horfurnar framundan þá í sögulegu hámarki og útlitið var bjart. Í könnun sem Capacent Callup gerði meðal neytenda í mars síðastliðnum kom í ljós að aldrei hafi jafn fáir hugað að utanlandsferðum og fyrstu mánuði ársins en vísitalan Capacent Gallup fyrir fyrirhugaðar utanlandsferðir sem mæld er ársfjórðungslega var tæplega 40% lægri en á sama tíma fyrir ári síðan.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira