Landsnet útvegar 5 milljarða með skuldabréfaútgáfu 29. október 2009 10:29
Landsnet hefur nýlokið útgáfu skuldabréfa að fjárhæð 5 milljarða króna. Um er að ræða fyrstu útgáfu fyrirtækisins á innlendum skuldabréfamarkaði og voru bréfin seld til lífeyrissjóða. Í tilkynningu segir að jákvæð viðbrögð fjárfesta leiddu til verulegrar umframeftirspurnar, en upphaflega voru boðnir út 3 milljarðar króna. ,,Við erum afar ánægð með viðtökur lífeyrissjóðanna og því trausti sem þeir sýna Landsneti", segir Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets. ,,Á næstu árum er framundan uppbygging Suðvesturlína, þar sem unnið verður að endurnýjun og stækkun raforkuflutningskerfisins frá Hellisheiði út á Reykjanes. Verkefnið tengist uppbyggingu orkuiðnaðar á þessu svæði til framtíðar. Auk þess munu umtalsverðar mótvægisaðgerðir breyta ásýnd viðkvæmra svæða eins og útivistarsvæðisins í Heiðmörk þar sem háspennulínur verða fjarlægðar. Landsnet mun einnig halda áfram að þróa og styrkja núverandi flutningskerfi. Stuðningur fjárfesta er okkur því mjög mikilvægur á þessum tímum". Saga Capital Fjárfestingarbanki hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna og mun einnig sjá um skráningu þeirra á Nasdaq OMX á Íslandi. Skuldabréfin eru verðtryggð og gefin út til 25 ára.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira