Telur að stýrivextir lækki um 0,5 til 1 prósentustig 29. október 2009 11:57
Greining Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd ákveði að lækka vexti bankans þann 5. nóvember næstkomandi. Reiknar greiningin með því að lækkunin verði með þeim hætti að vextir í sjö daga veðlánum til innlánsstofnana verði lækkaðir um 0,5 til 1,0 prósentu, þ.e. úr 12% niður í 11,0-11,5%. Þetta eru þeir vextir sem undir venjulegum kringumstæðum teljast stýrivextir bankans. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að greiningin telur einnig að nefndin ákveði að lækka innlánsvexti bankans, sem við aðstæður sem nú eru á fjármálamarkaði eru hinir raunverulegu stýrivextir og hinn raunverulegi mælikvarði á aðhald peningastefnunnar, um 0,25-0,50 prósentur þ.e. úr 9,5% í 9,0-9,25%. Í fréttatilkynningu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) sem birt var í gær vegna ákvörðunar stjórnar sjóðsins segir að framþróun í uppbyggingu fjármálakerfisins og fjármálum hins opinbera ætti að styrkja tiltrú og opna rými fyrir hóflega lækkun vaxta. Ekki verður annað séð en að með þessu sé sjóðurinn að segja að með þann ávinning í farteskinu sem náðst hefur í uppbyggingu fjármálakerfisins á síðustu mánuðum og þeim ákvörðunum sem tekin hafa verið í ríkisfjármálum ætti að vera svigrúm fyrir lækkun stýrivaxta Seðlabankans nú. Rétt er að rifja upp að á síðasta fundi peningastefnunefndarinnar vildi Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, lækka vexti en þá náði sú tillaga bankastjórans ekki fram að ganga vegna andstöðu annarra nefndarmanna. Tillaga hans um að draga úr peningamagni í umferð og draga þannig millibankavexti upp og nær stýrivöxtum bankans var hins vegar samþykkt og hefur haft tilætluð áhrif. Aðhald peningastefnunnar hefur þannig aukist. Einnig hefur verðbólgan minnkað, raunstýrivextir bankans hækkað af þeim sökum og aðhald peningastefnunnar aukist á þann mælikvarða einnig. „Má vera að peningastefnunefndin líti á þetta tvennt þannig að aukið svigrúm sé nú fyrir lækkun stýrivaxtavaxta bankans," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Sjá meira