Ætla ekki að innheimta ofurlán hjá börnum 29. október 2009 12:11
Dæmi eru um að Glitnir hafi veitt börnum há lán til stofnfjárkaupa í Byr sparisjóði. Tólf ára barn fékk slíkt lán upp á sex milljónir króna. Tugir stofnfjáreigenda undirbýr málsókn á hendur Íslandsbanka vegna lánanna. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Glitnir fjármagnaði 30 milljarða stofnfjáraukningu í Byr haustið 2007. Í blaðinu segir að Íslandsbanki hafi yfirtekið lánin eftir að Glitnir féll og því snúi undirbúningur málsóknarinnar að Íslandsbanka. Öll lánin hafa hækkað mikið á meðan eignin hefur rýrnað til muna, en óvissa er um verðmæti stofnfjárbréfanna. Stofnfjáreigendur telja að Glitnir hafi lofað að ekkert annað en stofnfjárbréf og arðgreiðslur af þeim hafi legið að baki sem trygging fyrir lánunum. Málshöfðunin snýst um hvort aðrar eignir en stofnféð sjálft hafi legið sem veð að baki lánunum. Viðskiptablaðið segir að í nokkrum tilfellum sé um að ræða lánveitingu til barna. Samþykkt var í nokkur skipti af sýslumanninum í Hafnarfirði að börn gætu verið eigendur stofnfjár í Byr, og var lánað til barnanna á þeim grundvelli. Már Másson, yfirmaður samskiptasviðs Íslandsbanka, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að í öllum tilvikum hafi foreldrar eða forráðamenn umræddra barna átt frumkvæði að lántökunni og komið fram fyrir hönd þeirra gagnvart Glitni. Frá stofnun Íslandsbanka hafi umræddar lánveitingar Glitnis verið til skoðunar. Við þá athugun hafi komið í ljós að ekki lá fyrir samþykki yfirlögráðanda, þ.e.a.s. sýslumanns, til lántöku hinna ófjárráða barna. Þar sem samþykki yfirlögráðanda skortir teljast umræddir lánsamningar ógildir og muni Íslandsbanki því ekki innheimta skuldina hjá viðkomandi lántökum. Íslandsbanki harmi málið í alla staði.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira