Hagsjá: Innistæðubréf Seðlabankans eru að virka 29. október 2009 08:05
Hagfræðideild Landsbankans telur að innistæðubréf Seðlabankans séu að ná tilgangi sínum og það séu líkur á að Seðlabankinn hafi náð að metta þá spurn sem var eftir innstæðubréfum og í leiðinni draga úr lausafé í kerfinu, líkt og stefnt var að. Þetta kemur fram í Hagsjá deildarinnar. Þar segir að Seðlabankinn hélt sitt fimmta útboð á innstæðubréfum í gær en um leið var fjárhæð fyrsta útboðs velt áfram þar sem endurkaupadagur þess var í dag. Í útboði dagsins var tilboðum einungis tekið fyrir 4,8 milljarða kr. sem er mjög lítið miðað við þá 25 miljarða kr. sem voru á gjalddaga. Jafnframt voru vextir tekinna tilboða 10% sem er jafnt þeim efri mörkum sem Seðlabankinn ákvað að yrðu í útboðunum. Í fyrstu tveimur útboðum Seðlabankans, eftir að ákveðið var að hefja þau í lok september, var tekið tilboðum fyrir alla þá fjárhæð sem í boði var, fulla 25 milljarða kr. Niðurstöður þeirra þriggja útboða sem komið hafa í kjölfarið eru hins vegar töluvert lægri eins og sjá má í meðfylgjandi töflu, og raunar lægri en upphaflega var ætlað. Samkvæmt tilkynningu Seðlabankans var ætlunin að bjóða út innstæðubréf að andvirði 15-25 milljarða kr. hverju sinni með 9,5% lágmarksvextir og 10% hámarksvexti. Í síðustu þremur útboðum hefur upphæðin verið undir þessu marki auk þess sem vextirnir eru við efri mörk þess bils sem Seðlabankinn setti. Það eru því líkur á að Seðlabankinn hafi náð að metta þá spurn sem var eftir innstæðubréfum og í leiðinni dregið úr lausafé í kerfinu, líkt og stefnt var að. Skoðun á vöxtum á millibankamarkaði rennir frekari stoðum undir þetta. Strax eftir annað útboð Seðlabankans, þegar innstæðuflokkurinn var orðinn 50 milljarðar kr. að stærð, hækkuðu vextir á millibankamarkaði með krónur (Reibor) umtalsvert. Viku síðar hækkuðu þeir á ný sem er til marks um að bankar fara nú fram á hærri vexti eigi þeir að lána sín á milli. Hins vegar hefur engin velta verið á þessum markaði undanfarna mánuði sem gerir erfitt að túlka hækkun vaxta til hlítar, að því er segir í Hagsjánni.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira