Töluverð aukning aflaverðmætis Gunnar Örn Jónsson skrifar 17. ágúst 2009 09:08
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 42 milljörðum króna fyrstu fimm mánuði ársins 2009, samanborið við 40 milljarða á sama tímabili 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 2 milljarða eða 4,2% á milli ára samkvæmt Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti botnfisks var í lok maí orðið 33 milljarðar á árinu sem er aukning um 5,8% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 31 milljarði. Verðmæti þorskafla var um 16 milljarðar og stóð nokkurn vegin í stað milli ára. Aflaverðmæti ýsu nam um 6,5 milljörðum og dróst saman um 5,1% frá árinu 2008. Verðmæti karfaaflans nam tæpum 5 milljörðum, sem er 57% aukning frá fyrstu fimm mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans dróst saman um 6,3% milli ára í rúma 2 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 28% frá árinu 2008 Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 3,5 milljörðum króna í janúar til maí 2009, sem er 40% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst hins vegar saman um 17% milli ára og nam 5 milljörðum. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam um 17 milljörðum króna fyrstu fimm mánuði ársins og jókst um 1,4% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 8,2% milli ára og var um 6 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 12 milljörðum, samanborið við 11 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 5,6 milljörðum, sem er 20,5% aukning miðað við tímabilið janúar til maí 2008.
Mest lesið Afsláttardagar skýri skyndilega hækkun bensínverðs Neytendur Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Neytendur Í hóp fimm milljarðamæringa úr tónlistarsenunni Viðskipti erlent „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Viðskipti innlent Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Fleiri fréttir Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent