Telur Peningastefnunefnd oftúlka verðbólguálag 2. júlí 2009 12:41 „
Seðlabankamenn virðast horfa nokkuð í hækkandi verðbólguálag á markaði og hafa af því áhyggjur að væntingar markaðarins standi nú til meiri verðbólgu til meðallangs tíma en áður. Við teljum þetta oftúlkun." Þetta segir í umfjöllun greiningar Íslandsbanka um ákvörðun Peningastefnunefndar í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12% Í Morgunkorni greiningarinnar segir að framboðsáhrif hafa undanfarið verið áhrifaþáttur á hlutfallslega þróun verðtryggðra og óverðtryggðra vaxta. Þannig hafa væntingar um framboð íbúðabréfa á næstunni jafnt og þétt breyst í átt til minna framboðs, á meðan útlit er fyrir að framboð ríkisbréfa verði öllu meira en áður var talið. „Þetta útskýrir að okkar mati að minnsta kosti hluta af þeirri hækkun verðbólguálags sem lesa má út úr þróun ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði undanfarið," segir greiningin. Í yfirlýsingu Peningastefnunefndar kemur fram að þótt verðbólga hafi reynst talsverð á öðrum fjórðungi ársins sé hætta ekki mikil á viðvarandi verðbólguþrýstingi vegna mikils slaka í hagkerfinu og nýlegrar framlengingar kjarasamninga til ársins 2010. Einnig hafa línur skýrst varðandi aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum og lánasamninga við hin Norðurlöndin, auk þess sem endurskipulagningu fjármálakerfisins miðar áleiðis. Þetta, ásamt því að skuldastaða hins opinbera og þjóðarbúsins í heild er að skýrast, mun að mati nefndarinnar styðja við þá viðleitni að draga smám saman úr gjaldeyrishöftum án þess að tefla stöðugleika krónunnar í tvísýnu. Þó er varað við að nauðsynlegt geti reynst að hækka vexti á meðan afléttingarferlinu stendur ef aðstæður kalla á slíkt. Greiningin segir að nú kveði við annan tón en í maí, þegar góðar líkur voru taldar á myndarlegri vaxtalækkun á komandi mánuðum. Þótt gengisþróun krónu hafi verið nokkru óhagstæðari undanfarið en vonir Seðlabankamanna stóðu væntanlega til í maíbyrjun skýrir það varla þennan algera viðsnúning í skilaboðum bankans um mögulega vaxtaþróun á næstunni. Slík misvísandi skilaboð eru tæpast til þess fallin að auka trúverðugleika peningastefnunnar eða gegnsæi hennar.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Sjá meira