Sex ár síðan annar bróðirinn vann síðast báða leikina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2009 15:56 Valur Ingimundarson vann báða leikina gegn bróður sínum í vetur. Mynd/Anton
Valur Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkinga í Iceland Express deild karla, fagnaði í gær sigri á bróður sinum í nágrannaslag Keflavíkur og Njarðvíkur í Toyota-höllinni í Keflavík. Þetta var í annað skiptið í vetur sem Sigurður þarf að sætta sig við tap gegn stóra bróður því auk tíu stiga taps í gær þá vann Njarðvík fyrri leikinn með tveimur stigum í Ljónagryfjunni. Það voru liðin sex ár síðan að annar bróðurinn náði síðast að vinna báða innbyrðisleiki tímabilsins. Bræðurnir höfðu nefnilega skipt með sér sigrunum síðustu þrjú tímabil en Sigurður stjórnaði lærisveinum sínum til sigurs í báðum leikjunum 2002-03 og 2001-02. Valur þjálfari Skallagrím 2002-03 en Tindastól tímabilið á undan. Sigurður náði einnig að vinna báða innbyrðisleiki bræðranna tímabilið 1998-99. Valur Ingimundarson hafði ekki unnið báða deildarleikina gegn bróður sínum síðan að hann stjórnaði Tindastól til sigurs í báðum leikjunum tímabilið 1999-2000. Tindastóll vann þá báða leikina nokkuð örugglega með 14 stigum á Króknum og með 13 stigum í Keflavík. Með þessum tveimur sigrum á Sigurði bróður sínum hefur Valur líka lagað tölfræði sína í viðureignum bræðranna í úrvalsdeildinni. Lið þeirra hafa nú mæst 18 sinnum í deildarkeppninni, lið Sigurðar hafa unnið tíu leiki en lið Vals hafa unnið átta leiki þar af þrjá síðustu. Það má segja að gengi bræðranna hafi snúist við. Lið Sigurðar unnu þannig sjö af fyrstu tíu innbyrðisleikjum sínum gegn liðum Vals en frá árinu 2004 þá hafa lið Vals unnið fimm af átta leikjum gegn liðum Sigurðar. Hér er aðeins átt við deildarleiki liðanna.
Dominos-deild karla Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Sjá meira