Viðskipti innlent

Þrjátíu skattsvikamál til skattrannsóknarstjóra

Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar
Ríkisskattstjóri mun á næstu dögum senda um þrjátíu mál til skattrannsóknarstjóra vegna notkunar á erlendum kreditkortum hér á landi. Grunur leikur á að um refsiverð brot sé að ræða en áberandi menn í viðskiptalífinu eru meðal þeirra sem notuðu kreditkortin.

Ríkiskattstjóri hefur undanfarna mánuði skoðað notkun á kortum sem gefin hafa verið út erlendis og skuldfærð þar en notuð til úttektar hér á landi. Þannig hefur fólk getað komist hjá því að greiða skatt af tekjum sínum en dæmi eru um að einstök kort hafi verið notuð fyrir allt að 40 milljónir á einu ári. Heimild til að nálgast upplýsingar um hreyfingar á kortunum fékkst síðasta haust og hefur skoðun ríkisskattstjóra verið viðamikil.

Ríkisskattstjóri krafðist upplýsinga frá eigendum verslana hvaða einstaklingar voru á bak við greiðslukort sem notuð voru í viðskiptum og fékk þannig upplýsingar um hverjir eru eigendur kortanna. Um 60 greiðslukort hafa verið í skoðun en í sumum tilvikum eiga sömu aðilar fleiri en eitt kort.

Ríkisskattstjóri sendi viðkomandi einstaklingum bréf þar sem óskað var eftir því að þeir gerðu grein fyrir erlendum tekjum og eignum. Heimildir fréttastofu herma að þeirra á meðal séu aðilar sem hafa verið umsvifamiklir í viðskiptalífinu og teljist til hinna svokölluðu útrásarvíkinga. Þá voru einnig tekjulágir einstaklingar líkt og öryrkjar meðal þeirra sem áttu kortin. Viðræður hafa verið í gangi milli skattayfirvalda um hversu mörg mál flytjast yfir til skattrannsóknarstjóra.

Skúli Eggert Þórðarson, ríkiskattstjóri, staðfesti í samtali við fréttastofu að meðferð málsins sé nú lokið hjá ríkisskattstjóra og að um helmingur málanna, eða um 30 muni verða vísað til skattrannsóknarstjóra. Þau mál sem eftir séu verði lokið með öðrum hætti, þ.e. með endurákvörðun opinberra gjalda.

Þá verða sum mál felld niður og önnur munu verða til frekari athugunar þó þannig að þeim verði ekki vísað til skattrannsóknarstjóra. Grunur leikur á að um refsiverð brot sé að ræða í þeim málum sem flytjast yfir og er reiknað með að þau endi með refsimeðferð. Skattrannsóknarstjóri mun rannsaka málin en þau geta endað með sekt eða kæru til ríkislögreglustjóra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×