Íslendingar svartsýnir og kvíða vetrinum 28. júlí 2009 16:49
Tiltrú Íslendinga á efnahagsaðstæðum og atvinnumálum lands og þjóðar er ekki mikil um þessar mundir. Hún hefur einungis einu sinni áður verið minni, í janúar síðastliðnum, samkvæmt væntingavísitölu Capacent Gallup fyrir júlí mánuð. Landsmenn búast við að komandi vetur verði erfiður. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans í dag. Vísitalan mældist 20,9 stig og lækkaði um 21% frá fyrri mánuði. Væntingavísitalan tekur gildi á bilinu 0-200 og táknar gildið 100 að jafnmargir svarendur séu jákvæðir og neikvæðir. Núverandi gildi er því afar lágt og tjáir ríka neikvæðni í landanum. Væntingar til sex mánaða hafa aldrei mælst lægri en vísitalan lækkuðu um 22% milli mánaða. Könnunin var gerð í byrjun júlí og benda niðurstöður til þess að landsmenn búist við að komandi vetur verði erfiður.Karlar jákvæðari en konur - menntun skiptir máli Karlar mælast töluvert jákvæðari en konur í könnuninni. Þeir hafa raunar ávallt mælst jákvæðari í væntingavísitölunni fyrir utan eitt skipti í september 2007. Að þessu sinni er það áhugavert í ljósi þess að fleiri karlar en konur eru atvinnulausir þar sem niðursveiflan hefur komið verr niður á hefðbundnum karlastéttum, svo sem byggingastarfsemi. Kannanir hafa sýnt að konur stjórna útgjöldum heimilanna í mun meiri mæli en karlar og því kann útskýringin að vera að þær finni betur fyrir því þegar kreppir að. Mikill munur sést jafnframt á tiltrú fólks eftir menntun þess. Þeir sem eingöngu hafa lokið grunnskólaprófi, hafa afar lágar væntingar og mælist vísitalan einungis 5,5 stig fyrir þann flokk. Að vísu dragast væntingar saman hjá öllum menntunarstigum fyrir utan þá sem lokið hafa grunnskólaprófi auk viðbótarmenntunar.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira