Hlutir í Alfesca verða innleystir 26. ágúst 2009 08:04
Lur Berri Iceland ehf. og stjórn Alfesca hf. hafa ákveðið að þeir hluthafar í Alfesca sem ekki samþykktu yfirtökutilboð Lur Berri Iceland og eru ekki í hópi samstarfsaðila um stjórn og rekstur Alfesca skuli sæta innlausn af hálfu Lur Berri Iceland á hlutum sínum í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti. Þetta kemur fram í tilkynningu en Lur Berri Iceland og samstarfsaðilar um stjórn og rekstur Alfesca eiga samtals 91,34% hlutafjár í Alfesca og fara með 91,87% atkvæðisréttar í félaginu. Innlausnin tekur til allra annarra hluta og nær til annarra hluthafa Alfesca sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í upphafi dags 26. ágúst 2009. Þeim hluthöfum er send þessi tilkynning ásamt framsalseyðublaði. Tilkynning þessi er birt í dagblöðum í samræmi við samþykktir Alfesca um boðun aðalfundar. Hluthafar í Alfesca, sem innlausnin tekur til, eru hvattir til að framselja Lur Berri Iceland hluti sína í Alfesca innan fjögurra vikna frá dagsetningu þessarar tilkynningar. Innlausnarverðið er 4,5 kr. fyrir hvern hlut í Alfesca. Greitt verður fyrir hlutina með reiðufé. Er um að ræða sama verð og Lur Berri Iceland bauð hluthöfum Alfesca í yfirtökutilboði frá 25. júní 2009. Greiðslan verður innt af hendi 29. september 2009. Til að framselja Lur Berri Iceland hluti sína í Alfesca þurfa hluthafar að fylla út framsalseyðublað sem þeim mun verða sent með þessari tilkynningu. Rétt útfyllt framsalseyðublað verður að berast Fyrirtækjaráðgjöf Nýja Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík, fyrir kl. 12:00 þann 24. September 2009. Hafi hlutir í Alfesca ekki verið framseldir Lur Berri Iceland í samræmi við framangreint, verður andvirði hlutanna í Alfesca greitt inn á geymslureikning í nafni viðkomandi hluthafa. Frá þeim tíma telst Lur Berri Iceland réttur eigandi viðkomandi hluta í Alfesca.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira